150. löggjafarþing — 110. fundur, 29. maí 2020.
Menntasjóður námsmanna.
329. mál
Virðulegi forseti. Breytingartillagan sem var kölluð aftur fjallar um að fella 26. gr. brott úr frumvarpinu. Því hafði ég í huga að greiða atkvæði gegn greininni en í ljósi þess að hún verður tekin til meðferðar í allsherjar- og menntamálanefnd milli umræðna geri ég mér vonir um að meiri hlutinn komist að sömu niðurstöðu og sit því hjá í þetta sinn.