150. löggjafarþing — 110. fundur,  29. maí 2020.

atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.

813. mál
[18:42]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Hér ræðum við framlengingu hlutabótaleiðarinnar og í dag vorum við að ræða frumvarp um að fyrirtæki fái greiðslur í uppsagnarfresti. Ég sagði í ræðu fyrr í dag að þessi ríkisstjórn væri eiginlega Covid-veik en hið rétta er að ég óttast að hún sé fjársjúk. Hún skrúfar frá ríkisfjármálakrananum þannig að það renna út ekki milljarða króna, ekki tugir milljarða króna heldur hundruð milljarðar. Þessari fjársýki fylgja verkir, svikaverkir og einnig alvarlegt óráð. En guði sé lof fyrir að þessi fjársýki er ekki smitandi og því þarf ekki sóttkví eða 2 metra fjarlægð hennar vegna. En það eru einnig gleðitíðindi sem fylgja þessu því að til er lækning við þessari sýki, sáraeinföld lækning. Hún er hér í álitum minni hlutans. Samþykkjum álit minni hlutans og þá verður þetta miklu betra. En eins og við urðum vör við í dag þá verður það aldrei. Sama hversu góðar hugmyndir koma frá minni hlutanum eru þær allar skotnar í kaf. Ríkisstjórnin segir nei, nýtir meiri hlutann.

Það furðulegasta í þessu er að eftir mikla yfirlegu og umræðu hefur komið í ljós og hefur verið sagt frá því hverjir nýta þessar leiðir en listinn stoppar við fyrirtæki sem er með færri en sex starfsmenn. Ástæðan er sú að Vinnumálastofnun ákveður það, það er ekki vegna þess að Persónuvernd hafi áhyggjur af því að brjóta persónuverndarlög. Þannig er undanskilinn ótrúlegur fjöldi fyrirtækja. Ég segi fyrir mitt leyti að það á ekki að vera neitt feimnismál hverjir ætla að nýta þessa leið, það á einmitt að vera algjörlega uppi á borðinu og ófrávíkjanlegt að almenningur og allir geti fylgst með því hverjir þetta eru. Til þess er leikurinn gerður, með því verður eftirlitið mun betra. Síðan er spurning hvernig við ætlum að haga þessu eftirliti. Það er hægt með ýmsu móti. En besta og sterkasta eftirlitið er að almenningur fylgist með, að einstaklingar, bæði í viðkomandi fyrirtækjum og aðrir sem hafa þekkingu á og geta fylgst með, fylgist með og láti vita ef þeir vita eða þá grunar að það sé maðkur í mysunni og verið sé að misnota þetta kerfi.

Í umræðunni í dag sagði, ef ég man rétt, framsögumaður meiri hlutans, hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir, að það væri ekki auðvelt og eiginlega mjög erfitt að sækja um hlutabótaleiðina, í sjálfu sér kannski mun auðveldara að sækja um að fá greiðslur í uppsagnarfresti. En er erfitt að sækja bætur til ríkisins? Sækja eitthvað í ríkissjóð? Nei, það er mjög auðveld leið. Það þarf bara að skila inn pappírum og sjá til þess að allir pappírar séu komnir inn og ef svo er þá kemst maður inn í leiðina. En ef maður ætlar að sækja um að komast inn í almannatryggingakerfið á örorku, dugar þá svona einföld leið að skila inn pappírum? Nei, það er sko langt í frá. Þá byrjar þvílík ganga á milli Heródesar og Pílatusar til að finna þá pappíra sem maður þarf á að halda og endalausar kvaðir um að skila inn fleiri pappírum. Þegar því pappírsflóði er lokið og viðkomandi hefur skilað þeim inn og heldur hann að nú sé björninn unninn, búinn að koma öllu til Tryggingastofnunar, kominn á bæturnar, þá byrjar ballið. Þá byrjar niðurlægingin. Viðkomandi er sendur úti í bæ þar sem er snúið upp á hann og djöflast á honum til að vita hvort hann sé svikari. Það er ekki farið eftir þeim gögnum og skýrslum sem fylgja, nei, það þarf að sannreyna allar staðreyndir.

Svona meðferð er óviðeigandi og niðurlægjandi en hún er ekki fyrir þá sem hér er fjallað um, bara þeir sem eru veikir fá svona meðferð. Og þegar þeirri meðferð er lokið og viðkomandi er kominn inn í kerfið eftir kannski eitt til tvö ár þá byrjar niðurlægjandi eftirlitsmeðferð og meira að segja gagnvart maka sem getur haft áhrif á það hvort viðkomandi heldur bótum eða ekki. Í þessu máli, þar sem við erum að ausa út hundruðum milljarða króna úr ríkissjóði, er þetta mjög auðvelt.

Ég er búinn að skoða þetta og ef ég væri með fyrirtæki með fullt af mönnum í vinnu og þyrfti að velja hvora leiðina ég vildi sækja um þá er ég alveg með það á hreinu, það er heilbrigð skynsemi, að ég myndi ekki sækja um hlutabótaleiðina. Ég myndi sækja beint um greiðslur í uppsagnarfresti, láta ríkið borga laun í uppsagnarfresti, láta fólkið vinna uppsagnarfrestinn. Síðan hvað? Síðan er því sagt upp, þá er þetta bara búið, þriggja mánaða eða sex mánaða uppsagnarfrestur. Þetta gildir reyndar í þrjá mánuði. Uppsagnarfrestur er liðinn. Þá er hægt að segja upp fólki og endurráða það, en á hvaða kjörum og í hvaða röð?

Því miður vitum við og erum búin að heyra það undanfarna daga að fleiri fyrirtæki eru að segja upp fólki og mörg fyrirtækin virðast vera mjög stöndug, hafa greitt gífurlegan arð, háa bónusa, stjórnendur á gífurlega háum launum, en það stoppar þau ekki. Það stoppaði sum þeirra og þau endurgreiddu stuðninginn þegar fyrirtækin áttuðu sig á því að almenningur var ekkert sáttur við að þau væru að sækja um hlutabótaleiðina. En ég er hræddur um að það sé skammgóður vermir og þau muni koma aftur.

Við verðum að taka fullt tillit til skýrslu Ríkisendurskoðunar. Ríkisendurskoðandi lagði mikla áherslu á að koma skýrslunni til velferðarnefndar. Hún sýnir í raun að það eru 160 manns sem sóttu um hækkun launa. Þessir 160 sóttu um hækkun upp á 114 milljónir. Ef við skiptum þessum 114 milljónum jafnt, maður veit ekki hvort það er rétt en sýnir kannski myndina af þessu, erum við að tala um í kringum 350.000 kr. á mánuði í hækkun. Hvernig væri að við settum það í samhengi við atvinnuleysisbætur í dag? Ég veit ekki hvort það er réttmætt, en manni finnst þetta samt mjög skrýtið og það fannst ríkisendurskoðanda einnig, að það væri eitthvað skrýtið þarna á ferðinni.

Skattaskjól. Jú, það hefur komið í ljós á síðustu dögum að fyrirtæki sem eru þar hafa sótt um úrræði ríkisstjórnarinnar og fengið. Fyrirtæki sem eru skráð í skattaskjól í Evrópu og hika ekki við að setja tugi manna á bætur frá ríkinu. Fyrirtæki sem við höfum ekki hugmynd um hversu mikla peninga eiga erlendis. Fyrirtæki sem hafa greitt gífurlegan arð og rosalega háa bónusa eru þarna inni. Fyrirtæki sem eru með forráðamenn og forstjóra á hrikalegum launum, milljónalaunum. Þetta sýnir svart á hvítu að því miður virðist siðferðið hjá ákveðnum einstaklingum, sem betur fer fáum, ekki vera upp á marga fiska. Flestir eru heiðarlegir. Flestir þurfa á einhverjum úrræðum að halda.

Við höfum líka séð að ríkisfyrirtæki og sveitarfélög hafa farið þessa leið. Það segir okkur ákveðna sögu. Það getur verið ósköp eðlilegt ef maður fengi upplýsingar um nákvæmlega hvers vegna þessi félög fóru þessa leið en það var ekki reiknað með því að sveitarfélög eða ríkisstofnanir færu inn í þessi úrræði.

Ef við horfum á upphaflegu hlutabótaleiðina sýnir það í hnotskurn hversu rangt við getum reiknað hér á þingi og hversu blint var farið út í þessa hlutabótaleið. Það kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar og þar segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar hafa um 37 þúsund launamenn og 6.400 vinnuveitendur nýtt úrræði stjórnvalda vegna minnkaðs starfshlutfalls. Þetta er mun meiri fjöldi en gert var ráð fyrir þegar úrræðið var upphaflega kynnt á Alþingi með frumvarpi sem síðar var samþykkt sem lög nr. 23/2020 um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðarsjóð launa. Í greinargerð frumvarpsins, sem var lagt fram 13. mars 2020, var gert ráð fyrir að um 1.000 manns myndu nýta sér úrræðið og kostnaður þess myndi nema um 755 millj. kr.“

Þetta er 37falt meira og kostnaðurinn engar 755 milljónir heldur 35 milljarðar, bara í þessu, svo eru það 27 milljarðar í uppsagnarúrræðinu. Hvernig í ósköpunum er hægt að reikna þetta svona rosalega skakkt? Eða segir þetta okkur að það var allt of opið, allt of auðvelt að komast inn í þetta úrræði? Þess vegna komst hellingur inn í þetta úrræði sem hafði ekki þörf á því.

Þetta er það sem við þurfum að rannsaka og skoða. Við eigum að læra af reynslunni úr bankahruninu. Við vitum að fullt af fyrirtækjum hafa farið með fé úr landi í skattaskjól á Tortólu, Cayman-eyjum og því miður, eins og þá kom fram, virðist ganga erfiðlega að ná því til baka. Það virðist líka vera svolítið rangt gefið í þessum frumvörpum að því leyti að ekki er byrjað á þeim mikilsverða hlut að ganga þannig frá að Vinnumálastofnun hafi nægt starfsfólk sem hefur þekkingu og getur rakið þetta. Það þarf að samræma starf Vinnumálastofnunar, Skattsins og allt saman og það strax. Ekki í haust, ekki í vetur, ekki eftir ár heldur strax, til að fylgjast með því og sjá til þess að þetta kerfi virki og að eftirlitið sé eins og það á að vera og okkur til sóma.

Lausnin er sú að þetta frumvarp yrði mun betra ef tekið væri tillit til nefndarálits minni hlutans og meiri hlutinn myndi læra af reynslunni, reynslunni af fyrri frumvörpum, og hlusta aðeins og taka tillit til þeirra góðu ábendinga, góðu mála, sem við erum að leggja til. En af reynslu hér inni þá reikna ég ekki með því. Það verður bara farin sama leiðin. Þá er það á hreinu að það er á ábyrgð þessarar ríkisstjórnar.