150. löggjafarþing — 110. fundur,  29. maí 2020.

atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa.

813. mál
[21:31]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta velfn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið en vil hér öðru sinni í kvöld lesa smáskilaboð sem mér bárust, með leyfi forseta:

„Smádæmi af fyrirtækinu sem ég vinn hjá, sem mig grunar að sé frekar dæmigert. Um er að ræða fyrirtæki, rótgróið, sem selur vörur sem einkanlega eru stílaðar á ferðamenn. Fyrirtækið setti næstum allt starfsfólk sitt á hlutabótaleiðina um leið og opnað var fyrir hana og sagði bara upp örfáum starfsmönnum þann mánuðinn þó tekjurnar hefðu strax þá pompað niður í næstum ekkert. Daginn eftir að uppsagnarleiðin var kynnt var öllum starfsmönnum fyrirtækisins með tölu sagt upp störfum.“

Þetta er raunveruleikinn, hv. þingmaður. Þetta er raunveruleikinn vegna þess að næstum öll fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi eru með nánast 100% tekjufall þessa dagana. Öll fyrirtæki sem sinna menningu og listum á Íslandi. Þau fyrirtæki sem annast alla tækniþjónustu í kringum menningu og listir, og viðburði og árshátíðir og þess háttar, eru með nánast 100% tekjufall. Fjöldi fyrirtækja sem búa til auglýsingar, búa til efni fyrir ráðstefnur, búa til hvers konar kynningarefni, markaðsfyrirtæki, og ég get haldið lengi áfram, eru með nánast 100% tekjufall. Þessi fyrirtæki munu samt reyna nú í sumar að halda sér gangandi af því að þau vonast til þess að eitthvað fari af stað, sérstaklega í ferðaþjónustunni. Þá er nú mjög vænlegt að geta fullnýtt starfsfólk sitt á uppsagnarfresti í staðinn fyrir að þurfa að þola þau skertu starfshlutföll sem boðið er upp á í hlutabótaleiðinni. Mig langar að fá viðbrögð hv. þingmanns við þessum tíðindum.