150. löggjafarþing — 112. fundur,  2. júní 2020.

uppbygging að loknum veirufaraldri.

[13:40]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Já, það er takmarkað hvaða orð er hægt að bjóða fólki upp á. Ég held að hv. þingmaður ætti að velta því fyrir sér þegar hún talar um líflaust hjarta, eins og í einhverjum mjög svo dramatískum dægurlagatexta, en nefnir engin raunveruleg dæmi, eins og þau að engin ríkisstjórn hefur gert meira í loftslagsmálum en þessi ríkisstjórn, að risastór skref hafa verið stigin í jafnréttismálum í tíð þessarar ríkisstjórnar, að breytingar hafa verið gerðar á skattkerfinu til að auka jöfnuð í tíð þessarar ríkisstjórnar, að fæðingarorlof hefur verið lengt í tíð þessarar ríkisstjórnar, að við erum að innleiða velsældaráherslur, þessi ríkisstjórn. Hér eru nefnilega gjörðirnar sem skipta máli en ekki orðskrúð sem mér finnst ekki eiga heima einu sinni í ræðustól þingsins. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)