150. löggjafarþing — 112. fundur,  2. júní 2020.

samþjöppun í sjávarútvegi.

[13:41]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Mikil samþjöppun hefur átt sér stað í sjávarútvegi á undanförnum áratugum. Tíu stærstu útgerðirnar fara með meira en helming kvótans og 20 stærstu um meira en 70% kvótans. Ofan á það bætist svo eignarhald þessara útgerðarrisa í öðrum útgerðum. Fyrir rúmum 20 árum voru lagagreinar samþykktar sérstaklega til að vinna gegn samþjöppun aflahlutdeildar sem talin var skaðleg, ekki síst út af mikilvægi fiskveiða fyrir íslenskan þjóðarbúskap. Of sterk yfirráð fárra aðila yfir fiskveiðiauðlindinni þýddu meiri völd til þeirra í þjóðfélaginu en heilbrigt væri og staða þeirra of sterk gagnvart stjórnvöldum. Samþjöppun kæmi í veg fyrir samkeppni og hamlaði nauðsynlegri endurnýjun. Þá gæti samþjöppun beinlínis unnið gegn þjóðarhag, sérstaklega ef viðkomandi stæði sig ekki í að skapa sem mest verðmæti úr auðlindinni, tilfærsla milli byggða reyndist skaðleg sveitarfélögum og tilfærsla milli útgerðarflokka gæti leitt til þess að minni útgerðir færu halloka.

Lögin hafa ekki náð tilgangi sínum. Eins og þau hafa verið túlkuð þá má einn aðili ráða yfir 12% kvótans og því til viðbótar eiga 49% hlut í öllum hinum fyrirtækjunum sem ráða yfir þeim 88% sem út af standa. Þannig getur einn aðili átt hlutdeild í meira en helmingi kvótans sem árlega er úthlutað. Sú túlkun á lögunum ýtir augljóslega undir samþjöppun og gengur þvert á anda laganna. Hæstv. sjávarútvegsráðherra hefur tekið undir álit verkefnisstjórnar um fiskveiðieftirlit um að miða eigi við reglur fjármálafyrirtækja um tengda aðila í lögum um fiskveiðistjórn.

Er hæstv. sjávarútvegsráðherra ekki sammála því að einnig þurfi að fara með 49% hlutfallið niður í 25%, líkt og ýmsir hafa lagt til? Að þeir sem eigi svo stóran hlut í öðru útgerðarfyrirtæki teljist tengdir aðilar þegar 12% hámarkið er metið?