150. löggjafarþing — 112. fundur,  2. júní 2020.

samþjöppun í sjávarútvegi.

[13:43]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Hún drepur hér á mál sem hefur verið mikið í umræðunni og mikið rætt í mörg ár. Við erum nú að gera tilraun til að nálgast í það minnsta hluta af því viðfangsefni sem hv. þingmaður nefnir hérna með verkefnisstjórn sem er ætlað að móta tillögur til endurskoðunar á fiskveiðieftirlitinu á grundvelli skýrslu Ríkisendurskoðunar. Ég veit að hv. þingmaður þekkir þá vinnu mætavel.

Já, samþjöppunin hefur verið gríðarlega hröð og mikil á undanförnum áratugum, sérstaklega tveimur. Við sjáum hana gerast núna meira í krókaaflamarkinu. Það eru einhverjir undirliggjandi þættir í samfélaginu öllu sem valda því að þessi samþjöppun á sér stað. Ég held að grunnkrafan í rauninni sem rekur á eftir þeirri samþjöppun, þeirri breytingu, sé krafan um að þessi atvinnugrein sé rekin með hagnaði, hún skili því til samfélagsins sem við öll viljum sjá. Í það minnsta var sú umræða tekin þegar þetta var leitt í lög á sínum tíma, hámarkið sem miðast við og er best þekkt sem 12% af heildarafla. Þá var talað um að sú krafa væri sett fram að greinin gæti skilað, það væri krafa um arðsemi og því fylgir að greinin verður að þjappa sér með einhverjum hætti saman.

Ég ætla að bregðast við fyrirspurn hv. þingmanns um það hvort ég sé tilbúinn til að færa prósentuna úr 49% niður í 25%. Ég tel þá umræðu þurfa miklu meiri og grundaðri umræðu heldur en gefst hér og nú. (Forseti hringir.) Ég er á þeim stað að vera ekki með neina mótaða afstöðu til þess. Það er einhver ástæða fyrir því að þetta var gert með þessum hætti og hefur haldist með þeim hætti sem raun ber vitni.