150. löggjafarþing — 112. fundur,  2. júní 2020.

brot á jafnréttislögum.

[13:48]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég ætla að taka hæstv. forsætisráðherra á orðinu og ræða gjörðir í jafnréttismálum. Í mars sl. fékk ég svör frá forsætisráðuneytinu við fyrirspurn um hversu oft stofnanir hefðu brotið jafnréttislög við ráðningu í opinber störf frá gildistöku laganna árið 2009. Svarið var 25 tilvik þar sem brotið var 18 sinnum á konum, sjö sinnum á körlum. Við það tilefni sagði hæstv. forsætisráðherra að þetta væri einfaldlega 25 brotum of mikið og ég tek hjartanlega undir það. Nú bárust fréttir af því í dag að Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefði brotið jafnréttislög með ráðningu Páls Magnússonar sem ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins, en það embætti var auglýst um mitt ár í fyrra. Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttismála og rökstuðningurinn er sláandi. Það kemur einfaldlega fram í niðurstöðu kærunefndar að það skorti verulega á efnislegan rökstuðning menntamálaráðherra fyrir ráðningunni. Ráðherra hefði vanmetið Hafdísi Helgu Ólafsdóttur, kæranda, umsækjanda, samanborið við Pál varðandi menntun. Ráðherra hefði vanmetið Hafdísi Helgu varðandi reynslu af opinberri stjórnsýslu. Menntamálaráðherra hefði vanmetið Hafdísi Helgu varðandi leiðtogahæfileika. Menntamálaráðherra hefði vanmetið Hafdísi Helgu varðandi hæfni til að tjá sig í riti.

Herra forseti. Þetta voru allt fortakslaus skilyrði í auglýsingunni. Ég spyr: Hvernig ætlar hæstv. forsætisráðherra, hæstv. ráðherra jafnréttismála, að bregðast við? Það er nefnilega erfitt, miðað við rökstuðning nefndarinnar, að draga aðra ályktun en þá að hér sé um ásetningsbrot að ræða. Þegar rökstuðningurinn er lesinn blasir það við. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Þarf ekki eitthvað annað en endurskoðun og einhvers konar kurteisleg tilmæli til þeirra sem hér eru að verki um að fara eftir lögum? Hefur hæstv. ráðherra ekki eitthvað annað í vopnabúrinu til þess að koma í veg fyrir svona brot?