brot á jafnréttislögum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég vil upplýsa að hæstv. menntamálaráðherra upplýsti ríkisstjórn í morgun um þennan úrskurð og hyggst taka hann til umræðu á næsta ríkisstjórnarfundi. Samkvæmt því sem fram hefur komið var það svo í þessu tiltekna máli að hæfisnefnd mat fjóra einstaklinga hæfasta og kærandi var ekki í hópi fjögurra hæfustu samkvæmt hæfisnefnd. Það kallar að sjálfsögðu á það að hæstv. menntamálaráðherra skoði málatilbúnaðinn og hvort réttilega hafi verið að honum staðið.
Hvað varðar kærunefnd jafnréttismála, sem er óháð úrskurðarnefnd, þá sagði ég það hér einmitt í svari við hv. þingmann að auðvitað væru 25 brot 25 brotum of mikið. Það sem skiptir máli að horfa á í heildarumhverfi jafnréttismála og jafnréttislaganna er: Hverju skila úrskurðir kærunefndar jafnréttismála? Hvaða áhrif hafa slíkir úrskurðir inn í stjórnkerfið? Nýtum við þá nægjanlega til leiðsagnar inni í stjórnkerfinu, svo dæmi sé tekið? Getum við gert betur í því? Það er eitt af því sem við þurfum að ræða sérstaklega í tengslum við heildarendurskoðun jafnréttislaga sem ég hyggst leggja fram á komandi haustþingi. Þá erum við sérstaklega að skoða þetta fyrirkomulag og hvort við getum með einhverjum hætti tryggt betur leiðsagnarhlutverk í raun og veru í stjórnkerfinu þegar kemur að jafnréttismálum. Það er að sjálfsögðu mjög mikilvægt og við höfum séð ýmis brot á þessum árum sem liðin eru sem hv. þingmaður nefnir hér, frá árinu 2008, og ég tel að við getum gert betur í því að fækka þessum brotum.