brot á jafnréttislögum.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mig langar líka til að ræða að nú hafa upplýsingalög verið töluvert í umræðunni undanfarið og hæstv. forsætisráðherra þekkir það. Hafdís Helga óskaði eftir rökstuðning fyrir ráðningunni í nóvember og öllum gögnum en þurfti að ítreka það þrívegis. Henni var neitað um þessi gögn á grunni þess að þarna væru einkahagsmunir annarra ríkari en hennar. Þá sjáum við að þetta hlýtur að vera eitthvað sem þarf að skoða. Þetta er, fyrirgefið, algerlega galið. Maður veltir því fyrir sér hvaða hagsmuna, hvaða einkahagsmuna sé verið að gæta með þessari nálgun. Þetta dæmi er einfaldlega eitt af þeim verri sem við höfum séð og það er ekki hægt að líta á þetta öðruvísi en sem falleinkunn fyrir stjórnvöld. Ég veit að þetta á sér stað yfir langt tímabil, það er ekki eingöngu þessi ríkisstjórn hér, en þetta gengur ekki lengur svona. Við það bætist síðan sem ráðherra spyr um, hverju úrskurðir skila. Þeir skila því að þeim sem brotið er á eru dæmdar bætur og þær koma úr vasa skattgreiðenda. Það gerist lítið annað.
Mig langar til að loka hér með því að spyrja hæstv. forsætisráðherra sem hefur sýnt hug sinn til jafnréttismála, (Forseti hringir.) m.a. með því að taka þennan málaflokk yfir til sín: Hverju hefur sú gerð skilað fyrir jafnréttismálin? Hverju hefur ríkisstjórn Vinstri grænna (Forseti hringir.) skilað í jafnréttismálum þegar við fáum svona mál (Forseti hringir.) ítrekað upp á borð og erum öll sammála að það gengur ekki?