150. löggjafarþing — 113. fundur,  3. júní 2020.

varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds í Stjórnarráði Íslands.

523. mál
[16:05]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Þar sem breytingartillaga minni hlutans var felld um að undanskilja ekki þessi lán og þessar skuldbindingar frá skráningu — einungis skráningu, ekki birtingu — sjáum við okkur ekki fært að greiða atkvæði með þessari grein þar sem við erum mótfallin því að ekki eigi að skrá þessa hagsmuni eins og aðra sem máli geta skipt.