varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdarvalds í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegur forseti. Hér ræðum við hina svokölluðu snúningshurð sem frumvarpið tekur á og stendur í vegi fyrir því að t.d. ráðuneytisstjórar eða ráðherrar geti komist til starfa fyrir hagsmunasamtök innan sex mánaða eftir að þeir láta af störfum fyrir hið opinbera. Af einhverjum orsökum hefur verið ákveðið, án þess að það fáist skýrt í nefndaráliti eða raunar af þingmönnum meiri hlutans, að undanskilja aðstoðarmenn ráðherra einungis frá þessu ákvæði. Segja má að þeir séu líklegastir til að leita í störf fyrir hagsmunaverði að afloknum störfum sínum fyrir ráðherra. Við þekkjum mýmörg dæmi þess. Þeir geta farið beint úr ráðuneytinu í starf hjá hagsmunasamtökum. Það geta þeir nú þegar, og stendur ekki til að breyta því. Við leggjum til að sömu ákvæði gildi um aðstoðarmenn ráðherra og um aðra æðstu stjórnendur framkvæmdarvaldsins, að þeim sé gert að bíða í sex mánuði áður en þeir fara að vinna fyrir hagsmunasamtök að afloknum trúnaðarstörfum sínum fyrir ráðherra í ríkisstjórn.