atkvæðagreiðsla með yfirlýsingu, svör við fyrirspurnum.
Forseti bar upp áðan tillögu um afbrigði fyrir því að 11. dagskrármálið, sem er frumvarp flutt af nefnd og er samkomulagsmál, flutt af öllum þingflokkum, fengi að koma á dagskrá þótt því væri útbýtt eftir 1. apríl o.s.frv., og notaði orðalagið að hann liti svo á að afbrigðin væru samþykkt ef enginn hreyfði andmælum. Þetta var vegna þess að forseti hafði áður rætt það við formenn þingflokka í morgun hvort ekki mætti líta svo á að um þetta mál væri þannig lagað fullt samkomulag að ekki þyrfti atkvæðagreiðslu um afbrigðin. Eftir sem áður hefði hver og einn þingmaður getað óskað atkvæðagreiðslu um það, en það var ekki gert. Þar af leiðandi var forseti í góðri trú með að um þetta væri fullt samkomulag.
Varðandi lengd þingfundar þá notaði forseti annað orðalag, þ.e. það er tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur. Svo spurði forseti hvort einhver óskaði eftir atkvæðagreiðslu. Það var gert og þá fer hún fram. Hér hefur engin breyting orðið á túlkun eða framkvæmd þingskapa. Hitt er vissulega rétt að Alþingi sameinaðist um að einfalda sér lífið eins og kostur væri meðan atkvæðagreiðslur voru með hvað erfiðustum hætti með því að taka eins mikið af þeim í gegnum yfirlýsingar og mögulegt var. Forseti er þakklátur fyrir það. En forseti vonar að hv. þingmenn séu ekki í neinum vafa um það hvar valdið liggur í þessum efnum. Það liggur hjá salnum, ætíð og alltaf. Forseti hefur hins vegar tillögurétt og forseti þarf ekki leyfi frá einstökum þingmönnum til að bera það upp hvort tillaga hans þurfi atkvæðagreiðslu eða ekki.
Að öðru leyti ætlar forseti ekki í frekari umræður um þetta mál og allra síst í eintal við hv. þm. Jón Þór Ólafsson um það mál. Málið liggur tiltölulega skýrt fyrir. Það eru þingsköpin sem gilda. Forseti tekur því ekki létt ef annað er borið upp á hann en að ætla svo.