atkvæðagreiðsla með yfirlýsingu, svör við fyrirspurnum.
Forseti. Mér finnst tilefni til að ítreka það sem bent hefur verið á hér, mikilvægi þess að forseti beiti sér fyrir því að ráðherrar svari fyrirspurnum innan tilskilins tímafrests. Það er nánast að verða regla frekar en undantekning að ráðherrar svari allt of seint og jafnvel allt of, allt of seint, eins og í því dæmi sem hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson nefndi hér áðan. Svo gerist það núna, eins og fram kom í máli hv. þm. Ólafs Ísleifssonar, að ráðherra sem áður hefur svarað sams konar fyrirspurnum tekur allt í einu upp á því að telja sig ekki eiga að svara fyrirspurnum, einhver annar eigi að gera það og þær séu of ítarlegar. Það tekur ráðherrann einhverja mánuði að koma með það svar, komast að þeirri niðurstöðu að viðkomandi ráðherra eigi ekki að svara. Hér verður forseti þingsins að grípa inn í.