atkvæðagreiðslu með yfirlýsingu, svör við fyrirspurnum.
Þetta er hárrétt hjá hv. þingmanni en þær breytingartillögur eru nú að stærstum hluta frá stjórnarandstöðunni, frá minni hlutanum, þannig að forseti var svo bjartsýnn og barnalegur að reikna með því að þokkaleg sátt væri um að breytingartillögur, m.a. fluttar af stjórnarandstöðunni, fengju að koma fyrir fundinn án þess að greidd yrðu sérstaklega um það atkvæði. En það reyndist misskilningur og forseti mun reyna að forðast hann. Ef stjórnarandstaðan óskar almennt eftir því að fá að greiða atkvæði um að hennar eigin mál megi koma á dagskrá þá er sjálfsagt að verða við því.