150. löggjafarþing — 114. fundur,  8. júní 2020.

atkvægðagreiðsla með yfirlýsingu, svör við fyrirspurnum.

[15:23]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að taka undir með þeim hv. þingmönnum sem gagnrýnt hafa tafir á svörum og sein svör. Það er ekki líðandi hversu algengt þetta er og hversu oft þingmenn þurfa að draga upplýsingar út úr ríkisstjórninni, nánast með töngum, til þess að fá upplýsingar sem við eigum rétt á að fá frá ráðuneytunum. Mér finnst mjög mikilvægt að við höldum þeim rétti okkar á lofti hér enda er hann mikilvægur.

Ég vil sömuleiðis benda á að það er mikilvægt, þegar þingmenn hafa gefið skýrt til kynna að þeir styðji ekki lengur það fyrirkomulag að hægt sé að ganga út frá stuðningi þeirra sem vísum nema þeir mótmæli því sérstaklega, að ekki verði efnt til atkvæðagreiðslu um hin ýmsu mál, breytingartillögur, dagskrárbreytingar eða annað, eða það að mál fái að koma fyrir salinn fyrr en ætlað er. Það er mikilvægt að tekið sé mark á því og þessu fyrirkomulagi hætt, enda ekki ástæða til að halda því áfram. Eins að hæstv. forseti ræði það við þingflokksformenn hverju sinni að hann óski eftir samþykki allra.