150. löggjafarþing — 114. fundur,  8. júní 2020.

atkvæðagreiðsla með yfirlýsingu, svör við fyrirspurnum.

[15:24]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil taka undir með þeim þingmönnum sem hafa kvartað undan því að svör komi seint frá ráðherrum og jafnvel sé ekki svarað þegar svörin koma nema bara að hálfu leyti. Þetta gengur ekki lengur. Ég treysti því, herra forseti, að forseti taki undir með okkur þingmönnum þegar við biðjum um hans liðsinni í því að kalla eftir svörum og kalla eftir því að brugðist sé hratt við og spurningum sé svarað af bestu getu og fyllstu einlægni, það sé ekki verið að bera því fyrir sig að starfsmenn ráði ekki við spurningafjöldann vegna þess að þá, herra forseti, þurfa ráðuneytin að ráða til sín fleiri starfsmenn. Við höfum hér ákveðnu eftirlitshlutverki að gegna og við verðum að fá næði og rúm til að sinna því.