150. löggjafarþing — 114. fundur,  8. júní 2020.

samningar við Reykjavíkurborg um sölu lands.

[15:33]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Þá vek ég hér með aftur athygli hæstv. ráðherra á því að borgin virðist vera að fara á svig við samning sem hún gerði við ríkið árið 2013 og fullt tilefni fyrir hæstv. ráðherra og ríkisstjórnina að grípa þarna inn í, eins og ríkisstjórnin hefði reyndar átt að gera í ótal mörg önnur skipti. Nýjasta dæmið, sem verið hefur í fréttum undanfarna daga, er af því þegar borgin hafði ákveðið að leggja veg í gegnum flugskýli á Reykjavíkurflugvelli. Eftir það komst í hámæli reyndu menn að draga í land með það en fundargerðir og önnur gögn sýndu að borgin hafði einfaldlega ætlað sér að gera það sem hún vildi með þetta land þótt það þýddi að leggja þarna fyrirtæki í rúst, veikja innanlandsflugið og leggja veg í gegnum flugskýli. Það er fullt tilefni til þess fyrir hæstv. ráðherra að kanna þetta mál, fletta upp þessum afleita samningi frá árinu 2013 og tryggja að borgin standi við sitt hvað þennan samning varðar en komist ekki upp með undanbrögð, eins og hún reynir allt of oft gegn ríkinu og því miður allt of oft með allt of miklum árangri.