150. löggjafarþing — 114. fundur,  8. júní 2020.

yfirvofandi verkfall hjúkrunarfræðinga.

[15:40]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég verð nú eiginlega að endurtaka spurningu mína. Ég spyr: Hvernig sér hæstv. heilbrigðisráðherra fram á að sýnatöku verði sinnt án hjúkrunarfræðinga? Eða er hægt að skilja þetta sem svo að planið sé að semja við hjúkrunarfræðinga? Það væri óskandi, það væri besta mögulega niðurstaðan. En ég spyr líka af því að margir hjúkrunarfræðingar óttast skiljanlega að sagan endurtaki sig og að lög verði sett á verkfallið, sérstaklega í ljósi þess mikilvæga tíma sem er núna, þ.e. að við erum að opna landamærin og starfsfólk þarf að vera til staðar til að sinna því starfi.

Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvað hún vilji segja við hjúkrunarfræðinga til að slá á þessar áhyggjur og hvort hún myndi styðja slíka lagasetningu, (Forseti hringir.) þ.e. að setja bann á verkfall hjúkrunarfræðinga. En mér finnst skorta svar við fyrri spurningunni (Forseti hringir.) um hvernig verði farið að þessari sýnatöku án hjúkrunarfræðinga ef verkfallinu verður ekki afstýrt með samningi.