150. löggjafarþing — 114. fundur,  8. júní 2020.

Menntasjóður námsmanna.

329. mál
[16:26]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Silja Dögg Gunnarsdóttir) (F) (andsvar):

Herra forseti. Eins og ég sagði áðan þá ítrekaði einmitt meiri hluti nefndarinnar, í sínu nefndaráliti, þetta atriði. Það er rétt skilið hjá þingmanninum að þessi fjölgun starfsmanna er bara ákveðið mat sem lánasjóðurinn gerir út frá þeim verkefnum og breytingum á starfsemi sem munu eiga sér stað þegar ný lög taka gildi. Þetta er eingöngu þeirra mat miðað við þá starfsemi og þjónustu sem þau veita í dag og þá þjónustu sem þau munu þurfa að veita þegar lögin taka gildi. Það er rétt skilið hjá þingmanninum að það er ekkert sem segir að það muni þurfa að fjölga um tíu eða 15 heldur þarf að sjálfsögðu að vega það og meta þegar fólk áttar sig betur á umfanginu og þegar óvissuþættir sem við ráðum ekkert við fara að skýrast aðeins með tíð og tíma. Eins og ég sagði höfum við sem tókum þátt í umræðunni af hálfu meiri hlutans komið inn á það að þetta sé eitthvað sem verði að vera aðeins innan sviga um sinn og síðan metið þegar starfsemin er farin af stað með breyttu sniði.