Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Já, þetta er risastórt mál og frábært mál. Þetta er framfaraskref, ég styð það og ég styð breytingartillögur sem fram hafa komið. Þetta varðar næstum því allar íslenskar fjölskyldur með einum eða öðrum hætti og verður vonandi til þess að styrkja þennan sjóð og gera honum kleift að standa undir hlutverki sínu sem félagslegur jöfnunarsjóður, sem hefur verið mjög mikilvægur í þróun íslensks samfélags. En því er ekki að neita að það hlutverk hefur svona hin seinni árin kannski ekki verið rækt af sjóðnum eins vel og æskilegt hefði verið, þ.e. það eru æ færri námsmenn sem nýta sér þessi lán en kjósa fremur að vinna með námi. Vinna með námi hefur verið meiri hér á landi en í þeim löndum sem við miðum okkur gjarnan við, og ég tel að það sé miður. Ég tel að það sé jákvætt að fólk einbeiti sér að námi sínu og það geti þá treyst því að lánin nægi því til framfærslu.
Það hefði verið æskilegt ef meiri hlutinn hefði fallist á breytingartillögur okkar bæði í 1. minni hluta, sem hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson talaði fyrir á sínum tíma, og í 2. minni hluta, þar sem ég var framsögumaður, um að reyna að tryggja betur að framfærsla dygði, að framfærslan yrði nógu há. En það fór sem fór, það var fellt. Engu síður styðjum við málið vegna þess að það er svo margt sem horfir til bóta.
Ég deili ekki þeim áhyggjum sem fram hafa komið af því að lagt sé í of mikinn kostnað vegna aukins mannahalds og bendi í því sambandi á að sjóðurinn hefur ekki bara það hlutverk að vera lánastofnun heldur gegnir hann líka mikilsverðu hlutverki sem þjónustustofnun, hefur það hlutverk. Til að veita góða þjónustu, góða ráðgjöf og þar fram eftir götunum þarf góðan mannskap og ekki er vanþörf á því að fjölga mannskap hjá þessum sjóði til að auka og hækka þjónustustigið.
Ég vil taka undir með hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni þegar hann talaði um að nokkur fljótaskrift hefði verið á því hvernig við í hv. allsherjar- og menntamálanefnd afgreiddum þá breytingartillögu sem hann hafði dregið til baka í 2. umr. í þeirri von að við myndum taka þetta fyrir í nefndinni milli umræðna. Eins og hann rakti áðan ágætlega í ræðu sinni var það skoðað á fundi meiri hluta nefndarinnar en kom ekki til raunverulegrar og alvarlegrar umræðu. Þetta var eiginlega búið og gert.
Ég held að það standi alveg rök til þess í báðar áttir að vissir hagsmunir séu fólgnir í því að sjóðurinn geti sótt útistandandi skuldir. Það eru bæði hagsmunir þeirra sem eru greiðandi skuldarar, þeirra sem standa í skilum, það eru jafnræðissjónarmið þar, og það eru líka hagsmunir þeirra sem eru lántakar, að sjóðurinn sé sjálfbær að einhverju leyti og að sem mestu leyti. En á móti kemur líka að ég hef efasemdir um að sjóðurinn sem slíkur hafi sérstaka hagsmuni. Sjóðurinn sem slíkur er ekki mannvera. Sjóðurinn er ekkert nema bara vettvangur fyrir lánastarfsemi og fyrir ákveðin félagsleg jöfnunartæki sem honum er ætlað að vera. Lánþegar hafa hagsmuni, skuldarar hafa hagsmuni en sjóðurinn sem slíkur hefur ekki hagsmuni. Sjóðurinn sem slíkur hefur engin mannréttindi eða réttindi, sjóðurinn er bara sjóður, þannig að ég get kannski ekki alveg lifað mig inn í þann málatilbúnað að sjóðurinn hafi sérstaka hagsmuni af því að geta gengið að gjaldþrotabúum og sótt kröfur þangað.
Að þessu sögðu þá er ég fyrst og fremst hingað kominn til að lýsa yfir stuðningi við þetta mál.