Menntasjóður námsmanna.
Herra forseti. Ég vil þakka þeim þingmönnum sem tekið hafa þátt í umræðunni fyrir framlag þeirra vegna þess að með því að skoða hlutina niður í kjölinn og koma með ólíkar hugmyndir náum við að mínu mati yfirleitt að bæta málin því að betur sjá augu en auga. Við höfum að sjálfsögðu bara okkar ólíku pólitísku sýn og þess vegna sitjum við hér og við höfum ólíkar skoðanir. En það sem eftir situr eftir meðferð málsins hjá hv. allsherjar- og menntamálanefnd er ríkur vilji allra nefndarmanna, sama hvar í flokki við erum, til þess að finna leiðir til að bæta kjör námsmanna.
Allir þeir sem tekið hafa til máls í þessu máli hafa sagt að þeir styðji það en hefðu mögulega viljað breyta einu og öðru. Það er fagnaðarefni því að mikil eftirspurn hefur verið eftir breytingum á námslánakerfinu um langt árabil og íslenskir námsmenn hafa metið stöðu sína verri en námsmanna í nágrannalöndunum. Það var svo sannarlega tími til kominn að uppfæra þau lög sem nú eru í gildi enda orðin rúmlega 30 ára gömul og margt hefur breyst á þeim tíma. Við erum að breyta kerfinu í átt að öðrum norrænum lánakerfum, þ.e. að blanda saman hefðbundnu láni og styrkjum frá ríkinu, styrkjum sem þeir fá sem ljúka námi á tilteknum tíma og einnig þeir sem eiga börn. Rauði þráðurinn er félagslegur þráður, að við göngum út frá því að allir, sama hver staða þeirra er í samfélaginu, eigi að eiga kost á því að stunda nám og auka þar með möguleikana á að bæta stöðu sína í samfélaginu.
Það verður stór stund fyrir okkur öll, vonandi á morgun, að fá að greiða atkvæði um þetta mikilvæga mál og ég vil enn og aftur þakka nefndinni kærlega fyrir gott samstarf og innlegg vegna þess að við höfum tvímælalaust gert gott mál betra. Málið hefur fengið mjög mikla efnislega meðferð, í mörg ár í rauninni. Núverandi hæstv. menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, er þriðji ráðherrann sem leggur fram frumvarp að lagabreytingum og í millitíðinni hafa hagsmunaaðilar og þingnefndir komið að málum og mikið samráð og lagfæringar átt sér stað þannig að ég er alveg sannfærð um að lengra komumst við ekki að svo stöddu. En eins og fram hefur komið eru endurskoðunarákvæði í frumvarpinu eftir þrjú ár. Það þýðir ekki að við séum svo óviss með að málið sé gott, að það sé alveg bráðnauðsynlegt heldur eru bara ákveðnir óvissuþættir til staðar sem enginn getur sagt fyrir um eða varla giskað á. Það er því bara eðlilegt að við endurskoðum löggjöfina eftir þrjú ár og tökum stöðuna að nýju.
Herra forseti. Ég þakka enn og aftur fyrir mjög ánægjulegt og gjöfult samstarf í nefndinni.