siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Þór Gunnarssyni fyrir framsögu hans um þingsályktunartillögu um siðferðileg gildi og forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu. Ég velti því fyrir mér meðan ég var að hlusta hvað flutningsmaður eða heilbrigðisráðherra ætlaði að fá út úr þessu máli. Það kom fram í ræðu þingmannsins að þetta væri lengi búið að vera til umræðu á öðrum stöðum líka og hann nefndi fyrrverandi heilbrigðisráðherra fyrir síðustu aldamót.
Mig langar að spyrja þingmanninn út í eitt af því að forvarnir og fordómar komu fram í máli hans. Eins og þingmaðurinn veit er sá sem hér stendur mikill áhugamaður um fíknisjúkdóma og glímuna við þá. Ég hef átt orðastað við heilbrigðisráðherra hvað það varðar og virðist vera erfitt að fá heilbrigðisráðherrann til að opna arma sína gagnvart þeim málaflokki af því að mér finnst að það séu ekki réttir aðilar sem eru stærstir í rekstri þeirrar stofnunar, sem er stærst í þeim málum, hvort þingmaðurinn geti tekið undir það að við þurfum að sýna þeim árangri sem þar hefur orðið — þá er ég að tala um SÁÁ að stærstum hluta — meiri athygli í þessari umræðu og í vinnu þingsályktunartillögunnar. (Forseti hringir.) Ég kem betur inn á þetta í síðara andsvari.