ársreikningar.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, fyrir hönd efnahags- og viðskiptanefndar. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem varða skil ársreikninga, nánar tiltekið um þá fresti sem þurfa að líða áður en ársreikningaskrá krefst skipta á búi félags vegna vanskila eða ófullnægjandi skila á ársreikningi eða samstæðureikningi og um meðferð slíkrar kröfu fyrir héraðsdómi. Jafnframt er lagt til að ársreikningaskrá verði heimilt að fella niður stjórnvaldssektir vegna ársreikningsskila samhliða slitum á félagi.
Í umfjöllun nefndarinnar hafa ekki komið fram athugasemdir við efni frumvarpsins. Þó hefur athygli nefndarinnar verið vakin á öðrum þáttum í lögum um ársreikninga, einkum sem varða skilgreiningu á hugtakinu ársverk annars vegar og stærðarmörk félaga í tengslum við endurskoðunarskyldu hins vegar.
Í þessu sambandi er vert að vekja athygli á umsögn Samtaka iðnaðarins þar sem bent er á meginreglu 1. mgr. 96. gr. ársreikningalaga um endurskoðunarskyldu félaga og undanþágu frá þeirri reglu í 98. gr. laganna. Samkvæmt 98. gr. þurfa félög að vera undir tveimur af þremur skilgreindum stærðarmörkum til að falla undir undanþáguheimildina. Telja samtökin að endurskoða þurfi þessi viðmið með það að markmiði að auka samræmi og bregðast við erfiðri stöðu fyrirtækja í framleiðsluiðnaði. Benda samtökin á að eigna- og tekjuviðmið samkvæmt ákvæðinu hafi haldist óbreytt frá 2014 og ekki hækkað í takti við þróun í veltu og eignum íslenskra framleiðslufyrirtækja. Því megi álykta að hlutfall fyrirtækja í framleiðsluiðnaði sem séu endurskoðunarskyld hafi hækkað á undanförnum árum, og ég hygg að það eigi við um fyrirtæki í öðrum greinum. Endurskoðunarskyldan og kostnaður sem henni fylgir sé íþyngjandi fyrir minni fyrirtæki sem búi við litla arðsemi og eiga í mikilli alþjóðlegri samkeppni. Samtökin benda á að samkvæmt aðfararorðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/34/ESB, sem innleidd var í íslenskan rétt, ættu lítil fyrirtæki ekki að sæta endurskoðunarskyldu, samanber markmið tilskipunarinnar um að draga úr stjórnsýslubyrðum og íþyngjandi kröfum með einföldun regluverks.
Lítil félög eru skilgreind í b-lið 11. töluliðar 2. gr. laga um ársreikninga sem þau félög sem eru undir tveimur af þremur stærðarmörkum sem taka mið af eignum, veltu og fjölda ársverka. Séu viðmiðin borin saman við þau sem gilda um undanþágu frá endurskoðunarskyldu samkvæmt 1. mgr. 98. gr. sést að fjárhæðamörk eigna og veltu til að njóta þeirrar undanþágu eru mun lægri en til að skilgreinast sem lítið félag. Viðmiðið um fjölda ársverka er hið sama í báðum tilvikum. Í umsögn sinni leggja Samtök iðnaðarins til að fjárhæðaviðmið í 1. mgr. 98. gr. verði hækkuð til samræmis við skilgreiningu laganna á litlum félögum.
Herra forseti. Í nefndarálitinu er síðan vitnað til minnisblaðs sem nefndin óskaði sérstaklega eftir frá ráðuneytinu og ætla ég ekki að rekja það efnislega hér. En nefndin hefur hins vegar skilning á þeim sjónarmiðum sem koma fram í umsögn Samtaka iðnaðarins. Nefndin bendir á að nauðsynlegt sé að ráðast í endurskoðun á IX. kafla laga um ársreikninga, m.a. að því leyti sem lýtur að fjárhæðarmörkum 1. mgr. 98. gr. Telur nefndin rétt að við þá vinnu verði m.a. tekið mið af ákvæðum og aðfaraorðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/34/ESB og breytinga sem orðið hafa á hlutfalli þeirra félaga sem endurskoðunarskyldan nær yfir síðan fjárhæðarmörkin voru síðast endurskoðuð. Jafnframt verði gætt að innra samræmi laganna með tilliti til skilgreiningar þeirra á litlum félögum. Beinir nefndin því til ráðuneytisins að endurskoðun að þessu leyti fari fram og að nefndin verði upplýst um framgang hennar.
Herra forseti. Ég hygg að ég tali fyrir hönd allrar nefndarinnar þegar ég ítreka að við ætlumst til þess að við sjáum frumvarp þessa efnis þegar hér á haustmánuðum.
Með þessu nefndaráliti er síðan breytingartillaga sem er tæknilegs eðlis og hefur ekki efnisleg áhrif.
Hv. þingmenn Jón Steindór Valdimarsson og Brynjar Níelsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var viðstaddur í gegnum fjarfundabúnað. Brynjar Níelsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifa undir álitið samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.
Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn, sá er hér stendur, Óli Björn Kárason, Brynjar Níelsson, Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Smári McCarthy og Willum Þór Þórsson.