150. löggjafarþing — 115. fundur, 9. júní 2020.
Menntasjóður námsmanna.
329. mál
Virðulegi forseti. Samfylkingin styður þetta mál enda er hér um að ræða framfaraskref fyrir flestöll heimili í landinu, sem þetta er mikið hagsmunamál fyrir. Þó vil ég segja að við hefðum kosið að betur hefði verið búið um hnútana hvað varðar framfærslu, að tryggilegar hefði verið gengið frá málum þar þannig að framfærsla sé tryggð. Og eins hefðum við viljað sjá ábyrgðir falla niður á lánum sem eru í vanskilum. Engu að síður styðjum við málið.