Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Ég er sammála því sem fram hefur komið, hér er verið að stíga jákvætt og gott skref. Margt er gott í þessu frumvarpi. En eins og aðrir í minni hlutanum hefði ég viljað sjá að stigið hefði verið fastar niður, að við hefðum nálgast frumvarpið út frá þeirri stöðu sem við erum í í dag sem samfélag með þá pólitísku sýn að ætla að veðja markvisst á menntun, rannsóknir, nýsköpun og um leið á stöðu námsmanna. Í þeim tilgangi lagði Viðreisn til beina námsstyrki í þágu námsmanna til að ná því markmiði fram að stúdentar geti lifað af náminu, en líka til að senda þau pólitísku skilaboð að menntun er liður í endurreisninni.