150. löggjafarþing — 115. fundur,  9. júní 2020.

Menntasjóður námsmanna.

329. mál
[14:16]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (U) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta eru löngu tímabærar úrbætur á lögum um námslán, heildarendurskoðun sem lengi hefur verið beðið eftir. En á sama tíma er ný heildarendurskoðun boðuð. Þá skiptir gríðarlegu máli að endurskoða framfærsluviðmið námsmanna. Í dag eru þau helmingur af lágmarkslaunum, 185.000 kr. fyrir einstæða námsmenn, sem er varla hægt að lifa á. Svo skulum við ekki gleyma því að við erum að samþykkja þessi lög í skugga þess að um 40% námsmanna horfa fram á atvinnuleysi í sumar. Úrræði stjórnvalda til að koma til móts við það eru hönnuð fyrir tveggja mánaða vinnu þegar sumarið er þrír mánuðir. Það verður að laga strax.