150. löggjafarþing — 115. fundur, 9. júní 2020.
fjöleignarhús.
468. mál
Virðulegur forseti. Ég gerði smáathugasemd við orðalag í sambandi við málefni hreyfihamlaðra í fjöleignarhúsum. Ég trúi því og treysti að séð verði til þess þegar settar verða upp hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla í fjöleignarhúsum að þær virki einnig fyrir hreyfihamlaða. Á þeim forsendum segi ég já við þessu frumvarpi.