150. löggjafarþing — 115. fundur,  9. júní 2020.

opinber stuðningur til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum.

711. mál
[18:26]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Ég vildi segja nokkur orð í tilefni af þessu frumvarpi sem ég styð. Ég tek undir flestallt sem hv. þingmaður og framsögumaður nefndarálitsins sagði. Var þar margt af viti sagt. Ég tek sérstaklega undir það að við þurfum að hlúa vel að nýsköpuninni. Þessi sjóður, Kría, er mikilvægt skref að því að tengja saman opinbert fé og einkafjármagn. Ég hef oft talað um nýsköpun, tækni, hugverk, hugvitsdrifinn útflutning og hinar klassísku fleiri stoðir sem við þurfum að skjóta undir efnahagslífið og atvinnulífið.

Við höfum gengið í gegnum ýmislegt í gegnum tíðina í atvinnu- og efnahagsmálum. Það sem einkennir samsetningu okkar og efnahagslífið í heild er að við búum við meiri og dýpri sveiflur, bæði upp á við og niður á við, en í flestum öðrum löndum. Það á sér nokkrar orsakir. Ein af þeim er sú að við erum of háð fáum atvinnugreinum, og hér er alls ekki verið að gera lítið úr þeim eða tala þær niður með nokkrum hætti heldur einungis verið að benda á nauðsyn þess að við höfum meiri fjölbreytni þannig að við stöndumst betur álag sem getur komið af ýmsum orsökum. Það getur verið vegna aðstæðna í náttúrufari, það geta verið gæftir, það geta verið aflabrögð eða hremmingar sem valda því að ferðamenn komast ekki til landsins eða vilja ekki koma til landsins af einhverjum ástæðum. Þess vegna er mjög mikilvægt að við höfum margt til að byggja á og styðjast við. Það eigum við að gera. Við höfum sagt þetta margoft við sjálf okkur og okkur hefur margoft verið sagt þetta. En einhvern veginn erum við svo fljót að gleyma okkur þegar vel gengur einhvers staðar, að við gleymum að hugsa lengra fram í tímann. Það hefur oft og tíðum margt gott verið sagt og gert í kringum nýsköpunarmál, vísindamál og þróunarmál. En það er eins og við setjum samt aldrei nægilegan kraft í þau og við trúum því einhvern veginn ekki almennilega sjálf að það sé hægt. Þess vegna gefumst við upp.

Hv. þingmaður sem mælti fyrir nefndarálitinu fór ágætlega yfir það hér, líka þegar hún talaði frá eigin brjósti og hún talaði um margt gott sem hefur verið gert á liðnum árum. Hún gerði auðvitað talsvert úr því sem ríkisstjórnin hefur gert og ekki ætla ég að tala það niður, það er mjög margt gott á því sviði. Samt er það einhvern veginn þannig að menn skera niður við nögl það sem sett er í þessi mál og eru svo tregir að hugsa til lengri tíma og segja: Við erum að leggja af stað í vegferð sem við vitum að er í sjálfu sér endalaus. En til að það verði verulegar breytingar verðum við að hugsa til a.m.k. 10–15 ára í einu til að ávextirnir af því sem við erum að gera komi almennilega í ljós. Þess vegna hef ég furðað mig svolítið á því hvað ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir hafa verið tregir til að veita almennilega framtíðarsýn í þessum efnum, þ.e. fjármögnunarþætti þessara mála. Við erum núna að tala um Kríu, nýjan sjóð, og þar ætla menn sér að ráðstafa á þessu ári 650 milljónum til að koma af stað nýjum vísisjóðum. Það liggur alveg fyrir, og nefndin sem fjallaði um málin hefur upplýsingar um það, að nokkrir sjóðir eru tilbúnir og aðrir í startholunum að taka við fjármagninu. Samt viljum við, eða stjórnvöld, ekki stíga lengra í fjármögnuninni.

Við erum með annað mál sem hefur oft verið rætt í því samhengi og er stundum kallað Stuðnings-Kría, sem á að veita nýsköpunarfyrirtækjum aðstoð sem eru í vanda. Ákveðið fjármagn, 500 millj. kr., er lagt til þess. Samt vitum við að nánast er öruggt að það verði ekki nóg. Samt tregðast menn við að horfast í augu við það. Mér finnst það mikill ljóður á vinnubrögðum okkar. Það er alveg eins með aukna skattendurgreiðslu vegna rannsókna og þróunar, þar nær framtíðarsýnin til tveggja ára. Hún nær ekki lengra og þá fer allt í sama farið ef ekki verður eitthvað gert.

Það er þetta sem ég skil ekki alveg þegar við öll, hvert um annað þvert, tölum um mikilvægi þess að okkur takist að breyta samsetningu atvinnulífsins og til þess þurfum við að feta nýjar brautir, en samt treystum við okkur ekki til að segja við sjálf okkur: Þetta kostar og við ætlum að greiða það sem það kostar.

Þeir fjármunir sem við setjum í málaflokkinn núna eru, fullyrði ég, hreinir smámunir miðað við svo margt annað sem við erum að gera. Og mætti segja að sumt af því orki tvímælis í því sem verið er að gera núna í atvinnu- og efnahagsmálum. Ég hef oft staðið hér og sagt að ég skilji eiginlega ekki af hverju við erum svona treg, eða stjórnvöld, við að taka djörf skref, stór skref, fullvissa allt þetta umhverfi um það að á næstu árum, a.m.k. tíu ár fram í tímann, verði þetta gert almennilega. Þetta verði í forgangi og stutt verði við alla starfsemina með ráðum og dáð. Á þetta finnst mér skorta og mér finnst að við séum bara að taka eitt hænufet áfram þegar við ættum að taka mörg stór skref, vegna þess að eðli nýsköpunar, tækniþróunar og vísinda er nú einu sinni þannig að það tekur allt sinn tíma og það þarf allt að fléttast saman. Vissulega eigum við dæmi um að fyrirtæki hafi náð undraskjótum árangri en langoftast eiga þau sér áratuga sögu, og það kemur í ljós þegar við skoðum sögu þeirra fyrirtækja sem við erum hvað stoltust af og hafa staðið sig hvað best á þessu sviði, skapað flest störf og skapað mestan útflutning. Það gerist ekki á einu ári, ekki á tveimur árum, ekki á fimm árum og ekki á tíu árum. Þetta finnst mér, því miður, vanta í þá stefnu sem mörkuð er og þær ákvarðanir sem teknar eru.

Ég ákvað að grípa tækifærið núna til að tala um þetta. Eins og þingheimur hefur tekið eftir hef ég ekki talað mikið um frumvarpið sjálft, enda held ég að það sé í öllum aðalatriðum til mikilla bóta og ég fagna því og styð það heils hugar. En ég held að við verðum öll að taka okkur á, sérstaklega stjórnvöld á hverjum tíma sem ráða ferðinni. Við þurfum að vera djarfari. Við þurfum að taka stærri skref og við þurfum að átta okkur á því að til að ná góðum árangri þarf að verja miklu fé í þessi málefni.