150. löggjafarþing — 115. fundur,  9. júní 2020.

opinber stuðningur til fjárfestinga í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum.

711. mál
[18:36]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Mig langaði að hafa nokkur orð um þetta frumvarp, sem er í flestum aðalatriðum gott. Ég styð það og er með á nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. En mig langaði til að ræða frumvarpið aðeins í stærra samhengi þess stuðningskerfis sem við höfum fyrir nýsköpun á Íslandi.

Það er mikilvægt að við áttum okkur á því að nýsköpun er ekki eitthvað sem gerist algjörlega af sjálfu sér. Það er auðvitað þannig að skapandi fólk er skapandi og mjög erfitt að fá það til að hætta að vera skapandi og það er heldur ekkert sérstakt markmið. En ef aðstaðan er ekki þannig að fólk geti verið skapandi og gert eitthvað við þá sköpun, komið henni til leiðar, t.d. stofnað fyrirtæki í kringum hugmyndirnar, komið fyrirtækjum í þannig ástand að þau hafi tekjur og geti farið að byggja upp framleiðslu og jafnvel útflutning og annað, þá er öll sköpunargleðin kannski gagnslaus, þ.e. í samhengi nýsköpunar og atvinnureksturs. Við þurfum að hafa góða samfellu stuðningskerfa. Það hefur vantað mjög lengi á Íslandi að sú samfella væri alveg heil. Það hefur verið nokkuð góður grunnur í mörgu. T.d. eru til góðir styrkir fyrir fyrirtæki sem eru rétt að koma sér af stað. Svo eru til örlítið stærri styrkir fyrir fyrirtæki sem eru komin með hugmynd og eru tilbúin til að stíga næstu skref. En síðan þegar maður horfir heilt yfir landslagið, hvort sem maður horfir á Tækniþróunarsjóð eða einhverja aðra sérhæfða sjóði, eru ákveðin efri mörk til staðar í dag. Þau eru kannski við 70 millj. kr. Það er, held ég, hæsta talan sem er til staðar í dag.

Kría kemur þar inn sem leið til að fara einu skrefi lengra. En það er samt ljóst að ef markmið okkar er að búa til aðstæður fyrir fyrirtæki til að geta farið að keppa á alþjóðavettvangi, geta verið næsta CCP eða næsta Marel eða næsti Össur okkar Íslendinga, þá þurfum við annaðhvort að vona að stærri og fjársterkari aðilar frá útlöndum birtist á heppilegum tíma, þegar fyrirtækin eru tilbúin fyrir það, og fjárfesti nógu duglega eða þá að við þurfum að búa sjálf til þannig kerfi. Kría gengur mjög langt í þá átt að brúa millibilsástandið, en við erum ekki komin nógu langt með næsta skrefið, sem er kannski það sem hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson talaði um áðan, að það vantaði í rauninni skalann eða stærðina.

Við þurfum einmitt að ganga miklu lengra ef við ætlum að ná þeim árangri sem ég held að flestir ef ekki allir hafi metnað fyrir. Vegna þess að okkur vantar þennan skalamöguleika hafa fyrirtæki, þegar þau hafa náð miklum árangri, ansi sterka hvata til að fara úr landi, annaðhvort að öllu leyti eða alla vega með einhvern verðmætan hluta reksturs síns. Það fellur inn í stærri mynd íslensks hagkerfis þar sem laun fólks eru mjög há, framleiðslukostnaður er mjög hár og mjög dýrt að flytja inn vörur til að setja saman eða búa eitthvað til úr þeim. Í ofanálag erum við hreinlega með umhverfi sem er mjög takmarkandi að mörgu leyti.

Þetta er gott umhverfi ef innihaldsefnið er gott. Það eina sem þarf til þess að búa til það sem menn ætla að búa til er hreint hugvit og kannski bara snjallt fólk sem situr kannski við tölvu og gerir eitthvað þar. En ef markmiðið væri t.d. að smíða einhverja áþreifanlega hluti, þá hafa dæmin sannað að það er alla vega hvati til þess, jafnvel þó að rannsóknir og þróun eigi sér stað á Íslandi, að sá hluti virðiskeðjunnar sem felst í samsetningu á búnaði flytjist að lokum að einhverju leyti úr landi og um leið töluvert af störfum. Ég hef talað áður um þetta sem skort á iðnaðarstefnu. Þá meina ég ekki stóriðjustefnu. Hún hefur verið til mjög lengi og verið mjög skaðleg á margan hátt, skaðleg að því leyti að hún veldur náttúrunni skaða, en líka í þeim skilningi að hún hefur kannski villt Íslendingum svolítið sýn á það hvað er mögulegt. Þegar ál er svarið þá er maður örugglega ekki að spyrja réttu spurninganna.

Almennileg iðnaðarstefna, eins og hún hefur verið lögð fram — t.d. hér á Alþingi nokkrum sinnum í kringum 1973 og 1974 og svo aftur 1991 af ágætis Framsóknarmanni þá, og nú síðast fyrir um ári þegar ég lagði fram mikið til sömu tillögu — fæli í sér að við myndum sem þjóð, eða alla vega stjórnvöld, setja fram einhvers konar hugmynd um það hvernig við viljum að hagkerfið okkar þróist, hvers konar störf og fyrirtæki við viljum byggja undir. Ætlum við að leggja áherslu á nýsköpun? Ef svarið er já, hvaða markvissu skref þurfum við að stíga til að komast þangað? Það hefur alltaf verið gert í einhvers konar hænuskrefum. Fólk áttar sig á einhverju vandamáli og bregst við því, en sjaldan eða aldrei er horft heilt yfir sviðið, horft jafnvel til þess hvað önnur lönd, sem hafa náð gríðarlegum árangri, hafa gert í gegnum tíðina, og sagt: Gott og vel, hvað þurfum við að gera til að komast þangað? T.d. finnst mér að við ættum að horfa til Svíþjóðar, sem er það land í Evrópu, ef ég er ekki með ranga tölfræði í hausnum, sem býr til flest öflug nýsköpunarfyrirtæki, per capita alla vega. Við gætum verið að tala t.d. um lönd eins og Suður-Kóreu eða Japan þar sem gríðarleg þekking á tækni hefur orðið til vegna þess að stjórnvöld hafa þar í marga áratugi beinlínis ýtt undir að öflug fyrirtæki verði til sem fókusera á tiltekna þætti, að það verði einmitt samfella í iðnaðinum, að hægt sé að gera allt sem þarf að gera innan landsins. Einhverjir myndu náttúrlega segja að Ísland sé mun fámennara land og hafi kannski minni burði og það er vissulega rétt. En við hljótum alla vega að geta búið til okkar eigin útgáfu af þessu. Einhverjir myndu líka gagnrýna það, og ég myndi reyndar taka undir þá gagnrýni, að í löndum eins og Suður-Kóreu er aðallega verið að miða við örfá risafyrirtæki og það er ekki góð hugmynd. En mögulega gætum við með okkar hætti fundið einhverja góða leið til að hafa samfellu án þess að hún yrði öll í eigu örfárra aðila.

Til að ná því þurfum við að fara að eiga samtal um iðnaðarstefnu í víðum skilningi. Við þurfum í öllu falli að tryggja mun betra fjárfestingarumhverfi. Við þurfum að horfa á það hversu mikið fé við notum í að styrkja nýsköpun í samanburði við það hversu miklum peningum við verjum í að viðhalda óbreyttu ástandi. Það má svo sem tala lengi um það. Ég ætla ekki að fara of mikið í þá gagnrýni því að þá förum við langt út fyrir nýsköpun. En til að setja umræðuna um skort á iðnaðarstefnu og kannski skort á heildrænni sýn á nýsköpunarmál í samhengi, þá hefur verið tilkynnt að Nýsköpunarmiðstöð Íslands verði lokað eftir áramót og enn sem komið er ekki ljóst hvað kemur í staðinn. Ekki er ljóst hvað verður um starfsfólkið og verkefnin sem eru þar. Þó að ég viti til þess að mikil vinna sé í gangi við að svara einhverjum af þessum spurningum, þá er þessi óvissa ákveðið ummerki um það að sú samfella og það skipulag, sem þarf að vera til staðar til að nýsköpunarumhverfið okkar virki, sé ekki til staðar. Ef rétt hefði verið að þessu staðið og í staðinn fyrir að tilkynna einn daginn að Nýsköpunarmiðstöð Íslands yrði lokað, hefði nýsköpunaráætlun okkar átt að koma. Í henni hefði staðið að eitt skrefanna væri að Nýsköpunarmiðstöð Íslands yrði lokað eða að hlutverkinu yrði skipt upp eða að eitthvað myndi breytast, og það yrði gert í samtali við alla fagaðila, alla þá sem vinna á sviðinu. Þá hefði þetta ekki komið sem óskipulögð tilkynning einn daginn án þess að neinn skildi hvað væri í gangi.

Mér fannst byrjað á öfugum enda þarna. Þessi ræða á svo sem ekki að vera um Nýsköpunarmiðstöð Íslands en þetta er svo gott dæmi um það hvað er að. Það þarf að hugsa þetta sem heildstætt kerfi. Ég hef ekki séð sannfærandi upplýsingar um að sú vinna sé í gangi. Kría kemur vissulega sem góður punktur inn í það ferli og inn í fjárfestingarumhverfið. Það er í sjálfu sér ágætt. Ég gerði að vísu kannski lítillega grín að þessu frumvarpi í upphafi af því að það næði einmitt ekki nógu langt og ekki væri horft á víðara samhengi. En ef við ætlum að halda áfram svona hænufetalausnum í staðinn fyrir að horfa heildstætt á málið, þá er þetta alla vega ágætishænuskref.

(Forseti (ÞorS): Forseti leggur áherslu á að þingmálið er íslenska og minnir á orðasambandið „miðað við fólksfjölda“.)