Orkusjóður.
Forseti. Við erum að fara að breyta Orkusjóði og útvíkka verkefni hans með sjálfbærni í orkunotkun að leiðarljósi. Vandamálið er að í frumvarpið vantar það sem við gerðum í nefndinni fyrir sex vikum varðandi Matvælasjóð. Við settum fagráð til að passa að sjónarmiðin þar séu fagleg og minnka freistnivanda ráðherra. Ef frumvarpið verður samþykkt svona þá skipar ráðherra einn þrjá aðila, ákveður stefnuna og hvernig þeir starfa og samþykkir á endanum úthlutun á almannafé hvað þetta varðar. Við breyttum því og settum inn fagráð þannig að háskólasamfélagið, nýsköpunargeirinn og atvinnugeirinn gætu komið með fagleg sjónarmið varðandi Matvælasjóð. Það er það (Forseti hringir.) sem breytingartillagan mín í málinu felur í sér að við gerum af því að við erum að útdeila mjög miklu almannafé. Þá eigum við að passa að fagleg sjónarmið liggi að baki og (Forseti hringir.) minnka freistnivanda ráðherra, að ráðherra geti með gerræðislegum hætti haft einhver áhrif (Forseti hringir.) á það hvernig fénu sé útdeilt.