heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hann varaði við því að vera að bera saman eða koma með einhvern málflutning þess efnis að tilteknir landshlutar væru ósáttir við framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Mín nálgun er einfaldlega þessi: Gríðarlegir fjármunir fara í borgarlínuna og það má gera ýmislegt í vegaframkvæmdum á öllu landinu og margt mikilvægt fyrir þann pening. Það er bara þannig, hv. þingmaður. Ég er þeirrar skoðunar að landsmenn megi og eigi að fá að tjá sig þegar svo miklu af skattpeningum almennings er varið í framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu sem við vitum ekki hverju munu skila. Við vitum ekki hversu margir koma til með að nýta sér þann samgöngumáta. Það er bara staðreynd.
Tökum Reykjanesbrautina sem dæmi. Að ljúka tvöföldun hennar kostar 3 milljarða. Hún er fjölfarnasti vegur landsins og flestallir landsmenn nota hana. Ég er sannfærður um það að flestallir landsmenn vildu sjá — á þeim vegarkafla sem er jafnframt orðinn einn sá hættulegasti á landinu þar sem hann er ekki tvöfaldur — að þeim framkvæmdum lyki sem fyrst. Það er fullkomlega eðlilegt að menn ræði það í þessu samhengi vegna þess að upphæðin er svo gríðarleg sem á að setja í þann tiltekna samgöngumáta sem borgarlínan er, sem skattgreiðendur og allir landsmenn þurfa að standa straum af en koma hins vegar ekki til með að nota eins og t.d. með því að fara suður á Keflavíkurflugvöll. Svo því sé haldið til haga þá er (Forseti hringir.) þetta mín nálgun sem ég tel fyllilega eiga rétt á sér.