150. löggjafarþing — 115. fundur,  9. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[21:04]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þó að hann hafi eytt talsverðum hluta framsöguræðu sinnar áðan í að ræða um 60 milljarða hlutinn sem áætlað er að fjármagna með eignasölu eða flýtigjöldum er ég samt, virðulegur forseti, alveg í myrkri. Hvert er sjónarmið Miðflokksins í því að breyta skattlagningu á umferð? Telur hv. þingmaður það ekki sanngjarna nálgun að breyta henni og leita meira í þann farveg að láta þá greiða meira sem nota tilteknar framkvæmdir og eru þar með að stytta ferðatíma sinn, spara eldsneyti o.s.frv.? Ég kalla eftir svari við því, virðulegur forseti. Er Miðflokkurinn alveg á móti því að breyta t.d. skattheimtu af umferð í landinu eða ætlar hann að sitja og bíða eftir því að dísil- og bensínbílar verði færri og færri og skattstofninn dragist saman og ekki standa að neinum breytingum? Hvert er viðhorf Miðflokksins til breytinga á skattlagningu umferðar?