150. löggjafarþing — 115. fundur,  9. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[21:06]
Horfa

Frsm. minni hluta fjárln. (Birgir Þórarinsson) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Hvert er viðhorf Miðflokksins til skattlagningar á umferð? Við höfum t.d. sagt þegar kemur að veggjöldum sem hafa verið í umræðunni að við getum ekki stutt þau nema þá a.m.k. að það komi lækkun á öðrum gjöldum á bifreiðaeigendur á móti, vegna þess að bifreiðaeigendur á Íslandi eru mjög mikið skattlagðir. Það er staðreynd. Hins vegar er alveg ljóst að það þarf að hugsa skattlagningu af ökutækjum almennt upp á nýtt. Þá á ég við aðflutningsgjöld og annað slíkt, vegna þess að það hefur orðið mikil breyting í þeim málaflokki eins og við þekkjum með tilkomu rafmagnsbifreiða og þær bera allt önnur gjöld, ef þó nokkur, á móti dísil- og bensínbifreiðum. Við erum algjörlega á þeirri línu að taka þátt í þeirri umræðu og höfum tillögur í þeim efnum. Það er nauðsynlegt að fara að endurskoða þann skattstofn, ég tek heils hugar undir það.

Hins vegar varðandi það að 60 milljarðar í gjaldtöku eigi að vera inni í þessum sáttmála og þessu hlutafélagasamkomulagi þá er það eitthvað sem er algjörlega óútfært. Það er verið að skrifa upp á það þegar menn hafa ekki hugmynd um með hvaða hætti það verður og hvernig framkvæmdin verður, hvert (Forseti hringir.) gjaldið verður o.s.frv. Að okkar mati er ekki hægt að fara inn í svona samkomulag þegar sú óvissa ríkir.