150. löggjafarþing — 115. fundur,  9. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[21:53]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er ansi hræddur um að þessi sjónarmið séu frekar úrelt og reyndar dæmigerð fyrir íslenska orðræðu í kringum strætó. Ég tek eftir að fólk sem kvartar mest undan strætó notar hann aldrei og hefur ekki notað hann í 30–40 ár. Vandinn við strætónotkun er fyrst og fremst viðhorfið. Það er viðhorfið sem t.d. endurspeglast í ræðu hv. þingmanns og því að þetta sé allt vonlaust og ómögulegt o.s.frv.

Ég ætla að nefna aðra persónulega sögu að gamni mínu, fyrst við ætlum ekki að nota hér gögn máli okkar til stuðnings, hvorki ég né hv. þingmaður. Ég bjó í Miðtúni í Túnunum í Reykjavík. Ég fór með barnið mitt til dagforeldris upp í útjaðar Árbæjar á strætó, kom til baka, kom við heima, skilaði kerrunni — sem var óþarfi, ég hefði getað skilið hana eftir uppi í Árbæ — og var kominn niður í bæ klukkan níu. Þingið var í sumarhléi á þeim tíma en ég hefði alveg getað mætt á nefndafundi. Þetta er úr miðri Reykjavík lengst út í útnára hennar og svo aftur niður í miðbæ klukkan níu. Það erfiðasta við það allt var að draga strákinn fram úr rúminu og klæða hann í föt. Restin var einföld. Það er ekkert mál að nota strætó. Það er komið app sem ég hvet hv. þingmann til að nýta ef hann hefur ekki prófað það. Það er hægt að sjá hvar vagnarnir eru hverju sinni og greiða fargjaldið í appinu.

Þetta er ekkert mál nema vegna þess að Íslendingar eru upp til hópa búnir að bíta það í sig að þetta sé allt ómögulegt og vonlaust og vegna þess að landið heiti Ísland sé einhvern veginn óraunhæfara að nota strætó hér en annars staðar, sem ég fullyrði að er rangt. Ef við tækjum höndum saman og reyndum að breyta því viðhorfi þá myndum við kannski hætta að tala strætó alltaf niður og frekar fara að benda á hann sem góðan kost, ekki bara vegna þess að fólk þarf hann heldur vegna þess að hann er m.a. ódýrari en aðrir kostir eins og leigubílar eða einkabílar. Hann er oft fljótari, ég veit að hv. þingmaður trúir því ekki og það fer auðvitað svolítið eftir staðsetningu, en hann er raunhæfur kostur. Við drögum náttúrlega úr því að fólk noti hann og geri hann að enn þá raunhæfari og betri kosti þegar við tölum hann sífellt (Forseti hringir.) niður, sér í lagi þegar það er byggt á því (Forseti hringir.) að einhverjar tilraunir hafi mistekist. (Forseti hringir.) Ég er ósammála hv. þingmanni. Ég sé ekki að þær hafi mistekist.