150. löggjafarþing — 115. fundur,  9. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[22:29]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta og ég biðst afsökunar ef ég virtist vera að gagnrýna hann áðan. Hæstv. forseti stjórnar þessum fundi ágætlega en það er erfitt við að eiga þegar hv. þingmenn haga sér með þeim hætti sem hv. fyrirspyrjandi, ef fyrirspyrjanda skyldi kalla, gerði áðan. Ég hvet hv. fyrirspyrjanda þó einfaldlega til þess að kynna sér málið, þó ekki væri nema að lesa frumvarpið og lesa í því hver eru markmið félagsins, hvaða valdheimildir það hefur og hvernig það á að starfa. Þá rennur þetta vonandi allt saman upp fyrir hv. þingmanni.