heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.
Virðulegur forseti. Það er til skammar hversu lítið af framkvæmdafé hefur farið til nýframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu á síðustu árum. Ég held að ég fari örugglega rétt með, samkvæmt skriflegu svari sem ég fékk frá samgönguráðherra fyrir að verða rúmu ári, að um 16–17% af nýframkvæmdafé hafi runnið til höfuðborgarsvæðisins alls, þar sem um 70% íbúa búa og örugglega 95% allra ferðamanna fara um. Það er einfaldlega til skammar.
Það byggist á þeirri aðferðafræði sem hingað til hefur verið fylgt við uppbyggingu samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu. Ég vona að nú verði breyting á með því breytta fyrirkomulagi sem við erum að fara í hér. Í september síðastliðnum var skrifað undir samkomulag við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og ég vil meina að það sé tímamótasamkomulag. Það er kannski ágætt að halda því til haga — af því að hér hafa ræðumenn svolítið mikið farið yfir það og verið mikið í mun að ræða um meiri hlutann í borgarstjórn Reykjavíkur og vissulega er Reykjavík höfuðborgin okkar — að þetta samkomulag var gert við öll sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins, þ.e. Garðabæ, Hafnarfjörð, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ, Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ og reyndar er Kjósarhreppur líka með í svæðisskipulaginu sjálfu sem gerir einmitt ráð fyrir þessari uppbyggingu.
Markmiðið með samkomulaginu er að stuðla að greiðum, skilvirkum, hagkvæmum og öruggum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta. Jafnframt er markmiðið að vinna að loftslagsmarkmiðum stjórnvalda um sjálfbært kolefnishlutlaust borgarsamfélag. Því verður helst náð með eflingu almenningssamgangna, deilihagkerfis í samgöngum og bættum innviðum fyrir aðra vistvæna samgöngumáta. Lykilatriðið er auðvitað að bæta umferðarflæði á höfuðborgarsvæðinu. Það eru lífsgæði fólgin í því að minnka þann tíma sem íbúar höfuðborgarsvæðisins sitja í bíl á leið milli staða. Það er mikilvægt að íbúar hafi raunverulegt valfrelsi um það hvaða samgöngumáta þeir velja. Þess vegna er mikilvægt að betrumbæta hina hefðbundnu stofnvegi en jafnframt að tryggja öruggar og góðar leiðir fyrir gangandi og hjólandi og efla almenningssamgöngur.
Frumvarpið sem við ræðum hér er hluti af þeim pakka að láta þetta samkomulag verða að veruleika. Því er ætlað að halda utan um þær framkvæmdir sem tilgreindar eru í þessu samstarfi. Ég held að það sé alveg gríðarlega mikilvægt að það sé gert með einmitt þessum hætti, því að það er einfaldlega þannig að höfuðborgarsvæðið allt er eitt atvinnusvæði. Hér flæðir fólk á milli. Þess vegna er nauðsynlegt að vinna saman að því að byggja upp samgöngur á milli þeirra sveitarfélaga sem hér eru. Það var gert með svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins til ársins 2040. Ég tók sjálf þátt í þeirri vinnu frá upphafi og til loka hennar. Sú vinna stóð yfir tvö kjörtímabil. Þar voru tveir þátttakendur úr sveitarstjórnum frá öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, bæði fulltrúar meiri og minni hluta. Þannig komu að þeirri vinnu kjörnir fulltrúar úr allflestum flokkum en að sjálfsögðu ekki Miðflokknum því að hann var ekki til á þessum tímapunkti. Svæðisskipulagið var samþykkt í öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu.
Það hefur verið töluvert rætt um að þetta sé framtíðin og því fylgi mikil óvissa. Ég hjó eftir því t.d. að hv. þm. Birgir Þórarinsson talaði um að þetta væri allt mikil óvissa, allt óskrifað inni í framtíðina. Já, framtíðin er óvissa. Við getum ekki sagt skýrt hvernig hlutirnir verða í framtíðinni en niðurstaðan hérna er byggð á bestu mögulegu gögnum og þekkingu og lýðræðislegu samtali um það hvernig við bætum best samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Þá er líka mikilvægt að horfa til þess að við erum að horfa inn í framtíðina. Þetta eru ekki bara samgöngumannvirki sem eiga að þjónusta okkur, fólk eins og það sem skipar þennan sal, og höfuðborgarsvæðið eins og það lítur út í dag. Við erum að horfa til ársins 2040 þegar um 70.000 fleiri munu búa á svæðinu.
Tímarnir breytast og mennirnir með. Þegar skoðaður er vilji kynslóðanna er töluverð breyting á því hvernig fólk hugsar um samgöngur. Ég hygg að flestir sem hér hafa talað í dag tilheyri annaðhvort svokallaðri „baby boomers“ kynslóð, virðulegur forseti, ég veit ekki alveg hvernig ég á að þýða það á íslensku, eða X-kynslóðinni, þar sem bíllinn er stöðutákn. Það verður líka að viðurkennast að það hefur oft skipt karlmenn meira máli en kvenmenn að bíllinn er raunverulegt stöðutákn. Það þekkist úr öllum sálfræðirannsóknum. Það er aftur á móti þannig að næstu kynslóðum, sem hafa verið nefndar Y- og Z-kynslóðirnar, er alveg sama um bílinn. Hann er bara farartæki til að komast á milli staða og þessar kynslóðir vilja hafa aðgang að slíku farartæki. Þær vilja líka hafa aðgang að hjóli, hlaupahjóli og almenningssamgöngum, allt í bland. Þær hafa í minni mæli þörf fyrir stór einbýlishús, stóra garða og tvo til þrjá bíla í portinu fyrir framan. Þessar kynslóðir gera einfaldlega aðeins aðrar kröfur. Þess vegna er svo mikilvægt, þegar við ræðum skipulagsmál sem eru til langrar framtíðar, skipulag sem stendur um langa tíð, að horfa á breyttan vilja fólks. Þá kem ég aftur inn á það sem ég sagði áðan, fjölbreytni og valfrelsi. Það er enginn að segja að allir hér inni þurfi að hoppa upp í strætó og fara að taka borgarlínuna þegar hún kemur. Meira að segja er kosturinn sá að meira pláss verður á götunum fyrir þá sem velja einkabílinn þegar borgarlínan er komin og fleiri fá tækifæri til að nota þann samgöngumáta sem þeir vilja raunverulega nota.
Í þessari umræðu hafa fallið ýmis orð um að þetta hafi ekki gengið. Búið sé að prófa þetta og Ísland sé einhvern veginn allt öðruvísi en öll önnur samfélög í vestrænum heimi og þótt víðar væri leitað. Hér bara gangi ekki að fara í strætó. Milljarðar á milljarða ofan hafi verið settir í það og ekkert breytist, það séu alltaf einungis þessi 4% sem taka strætó. Þess vegna, virðulegur forseti, ætla ég að fá að fara yfir nokkrar tölur. Fjöldi farþega Strætós á hvern íbúa á höfuðborgarsvæðinu jókst um 22% á árunum 2011–2017. Bílaumferð jókst jafn mikið, um 21%. Getum við þá ímyndað okkur hvað bílaumferðin hefði aukist mikið ef almenningssamgöngur hefðu ekki verið í boði? Árið 2009 fór hver íbúi að meðaltali 37 sinnum með strætisvagni en sú tala var orðin 54 ferðir árið 2017. Fastanotendur Strætós voru 14.899 árið 2017 sem er þreföldun frá 2011, þá voru þeir aðeins um 5.000. Þegar teknar eru helstu umferðaræðar stóð bílaumferð á Kringlumýrarbraut nánast í stað á árunum 2011–2017. Aftur á móti sýndi talning á bílaumferð í gegnum Fossvog og yfir Elliðaár aukningu um 40% á sama tímabili. Farþegum í strætisvögnum hefur fjölgað á báðum þessum leiðum, um 11,6% á Kringlumýrarbraut og 20,3% í gegnum Fossvog.
Virðulegur forseti. Ég fór áðan í andsvar við hv. þingmann. Gjarnan þegar ég ræði um málefni Strætós segist fólk alltaf sjá strætisvagna akandi um tóma, einungis örfáar hræður séu í þeim. Það er alveg eins með vegina okkar. Stundum eru þeir stappfullir af bílum og stundum eru bara örfáir þar. Það er örugglega alveg eins með vatnið okkar sem rennur í gegnum leiðslurnar, stundum eru allir að nota vatnið og stundum ekki. Þannig er einfaldlega þjónusta af þessu tagi. En ef við lokum á hana þá notar hana enginn.
Þá getum við farið í umræðuna um það hvað þurfi til að ná enn meiri árangri í almenningssamgöngum. Hvað þurfum við að gera til að fá fleiri til að nýta sér þær? Rannsóknir hafa sýnt að tíðnin skiptir langmestu máli, það hversu oft vagninn kemur þegar fólk er á ferðinni. Þar á eftir koma gæði leiðakerfisins og svo ferðatíminn. Hvað ganga hugmyndir um borgarlínu út á? Að auka tíðnina, fara oftar með minna bili á milli og auka hraðann vegna þess að það er auðvitað þannig að í umferðarmannvirkjunum okkar sitja strætisvagnarnir alveg jafn fastir og einkabílarnir í sultunni, eins og ég hef gjarnan kallað það þegar umferðin er hvað mest, reyndar með nokkrum undantekningum og hverjar eru þær? Það eru þessir svokölluðu rauðu dreglar. Ég veit ekki hvort einhver er raunverulega á móti þeim. Ég hef alla vega ekki heyrt marga tala um það. En borgarlínan er raunverulega rauðir dreglar fyrir strætó víðar á höfuðborgarsvæðinu, hraðari og betri almenningssamgöngur. Það er ekkert rosalega flókið.
Þó að margir hafi viljað kasta því fram að þetta sé algerlega óútskýrt og enginn viti um hvað verið sé að ræða er það ekki satt. Bæjarfulltrúar á höfuðborgarsvæðinu vita nákvæmlega um hvað verið er að ræða og bæjarfulltrúar á síðasta kjörtímabili vissu það líka nákvæmlega. Sérfræðingar sem hafa unnið að þessum málum og þekkja til samgöngumála vita nákvæmlega hvað er um að ræða. Fólk velur bara að segja að þetta sé algerlega óútfært og enginn viti um hvað málið snýst í rauninni. En þá er líka ágætt að huga að því að ef við erum ekki alveg á móti almenningssamgöngum og fólk vill raunverulega hafa almenningssamgöngur, því að ég hef ekki heyrt marga segja að þeir séu alveg á móti þessu og vilji leggja niður Strætó, má velta fyrir sér hver helsti rekstrarkostnaðurinn hjá Strætó er. Hann er eins og hjá flestum fyrirtækjum á Íslandi mannafli. Þar á eftir koma olía og tæki. Og hvað þýðir það? Þegar strætó situr fastur með strætóbílstjóranum, tækjum og tólum og eyðir olíu er það auðvitað stóri hlutinn í rekstrarkostnaði. Það er búið að reikna út að í hvert skipti sem við náum að auka meðalhraða strætisvagns á leiðinni sparast umtalsverðir fjármunir. Það er bara einföld hagfræði.
Reyndar sagði einhver áðan — ég held að ég hafi það rétt eftir, virðulegur forseti, að það hafi verið hv. þm. Birgir Þórarinsson, hann er í salnum, ég bið hann afsökunar ef ég hef rangt eftir — eitthvað á þá leið: Það á bara að fara í þessa uppbyggingu, sama hvað menn segja. (BirgÞ: Það er rangt.)Er það rangt? Ég held að þú hafir sagt það. En ég ætla að segja: Já, það á að fara í þessa uppbyggingu og það er sama hvað Miðflokkurinn segir því að hann er eini flokkurinn sem hefur talað skýrt á móti þessari uppbyggingu.
Borgarlínan kostar töluverða fjármuni, allt of mikið segja einhverjir. Samgöngumannvirki kosta gríðarlega fjármuni. Þegar farið er í hagfræðigreiningu á því hvað er hagkvæmast að gera er örugglega hagkvæmast að vera eitthvert svona Kínaveldi og byggja upp einhverjar lestir og henda öllum inn í þær og segja: Þú hefur ekkert val um það hvernig þú átt að fara milli staða. Það væri örugglega hagkvæmasta leiðin. Dýrasta leiðin er aftur á móti að halda bara áfram að byggja hér göng, mislæg gatnamót og fjölga akstursstefnum í allar áttir. Það er langdýrast. Leiðin sem var farin í þessu aðalskipulagi var einhvers konar blönduð leið þar sem fólk fær að velja hvaða leið það notar. Við ætlum að hafa öflugt stofnvegakerfi en við ætlum líka að hafa öflugar almenningssamgöngur. Það er hagkvæmni í því fólgin. Það er einfaldlega hagkvæmasta leiðin. Svo þurfum við að sjálfsögðu líka að auka virka samgöngumáta og við sjáum það á Hjólað í vinnuna og á góðviðrisdögum að fólk er raunverulega að nota hjól sem samgöngumáta. Það er ekki lengur aðeins sport einhverra skrýtinna, miðaldra karla í latexbuxum. Það er raunverulegur samgöngumáti.
Þegar talað er hér um kosningaloforðin segi ég: Já, ég lofaði þessu fyrir kosningar. Ég lofaði borgarlínu fyrir kosningar. Félagar mínir í meiri hlutanum í Mosfellsbæ gerðu það sama og það gerðu bæjarfulltrúar í öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Það er kannski gaman að geta þess, ég efast um að margir viti það, hvaða sveitarfélag var það fyrsta sem breytti aðalskipulagi til að fella inn skipulag borgarlínu. Vill einhver giska? Það var Garðabær. Garðabær var fyrsta sveitarfélagið sem gerði breytingu á aðalskipulagi til að setja inn stoppistöðvar fyrir borgarlínu og gera ráð fyrir henni, þannig að allt tal um að borgarlína sé bara hugarfóstur borgarstjórans í Reykjavík er rugl og þvæla. Hann styður hana sem og meiri hlutinn í Reykjavík og það gera líka meiri hlutarnir í allflestum sveitarfélögunum í kringum okkur og ekki aðeins meiri hlutinn heldur flestir sveitarstjórnarfulltrúar sem hafa komið að verkefninu.
Það er fagnaðarefni að við séum komin á þennan stað en við erum ekki komin alla leið. Við þurfum að klára þetta félag. Svo að sjálfsögðu þurfum við að setja fjármagn í uppbygginguna. Þá minni ég aftur á það sem ég sagði í upphafi: Það er skammarlegt hve lítið fé hefur farið til samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu. Það er skammarlegt og nú hlýtur að vera kominn sá tími að við þurfum að efla samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Það skulum við gera í góðu samstarfi við sveitarfélögin á svæðinu með því að virða þann sáttmála sem skrifað var undir og vinna að því að auka framkvæmdastig og bæta lífsgæði fólks á höfuðborgarsvæðinu.