150. löggjafarþing — 115. fundur,  9. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[22:52]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er gott að hv. þingmaður útskýri nákvæmlega hvað hann var að spyrja um, á hvers kostnað. Hv. þingmaður var raunverulega að spyrja á kostnað hvaða annars samgöngumáta rauði dregillinn ætti að koma, svo það sé skýrt. Ég heyri þetta víða í umræðunni, fólk er mjög hrætt við að taka eigi götur þar sem einkabíllinn getur keyrt í dag og leggja undir strætó. Ég held að það sé ekki meginreglan í lagningu borgarlínu. Á flestum stöðum er þetta hugsað sem aukarými en það kann vel að vera að á einhverjum stöðum verði teknar akreinar frá. En það er auðvitað misjafnt eftir hverju svæði fyrir sig. Það er deiliskipulagsmál í hverju hverfi fyrir sig hvernig það er gert.

Hv. þingmaður nefndi Kópavog. Það eru hugsaðar almenningssamgöngur á brú á milli Fossvogs og Kópavogs sem dæmi. Ég get sagt honum hvernig þetta á að vera uppi í Mosfellsbæ. Þar á að fara í gegnum Blikastaðalandið þar sem er nægt rými. Verkefnið er auðvitað mjög mismunandi. Sums staðar er það auðvelt en sums staðar flóknara.

Ég eyddi öllum tímanum í að segja þetta en hefði auðvitað átt að útskýra hvað borgarlínan er því að ég er mjög sár yfir því að enn sem komið er sé fólk ekki farið að átta sig á borgarlínu. (Forseti hringir.) Borgarlína er fyrst og fremst almenningssamgöngur sem (Forseti hringir.) keyra í sérrými. Það er stutta útgáfan af því. (ÞorS: … talað um það á eftir.)