150. löggjafarþing — 115. fundur,  9. júní 2020.

heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

735. mál
[23:30]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir. Það sem ég er aðallega að falast eftir í pælingum mínum er að mér finnst ekki fullreynt að finna hvata til þess að fá fólk til að nota strætó. Tíðni vagnanna er ekki einungis vegna þess að það eru allt of margir bílar á götunum, ég neita hreinlega að trúa því.

Hv. þingmaður nefndi rekstur á hjartadeild. (BHar: Bara til þess að taka eitthvert dæmi.) Ég tengi alveg við þetta vegna þess að akkúrat núna erum við alltaf að velja dýrasta kostinn með því að hlaða öllu inn á ofhlaðinn Landspítala sem er dýrasti kosturinn. Ég segi: Prófum áfram, leggjum til leiðir áður en við veljum dýrasta kostinn sem skattgreiðendur greiða. Þeir hafa ekkert val. Það er okkar að stýra því og við erum að stýra því í ranga átt.