150. löggjafarþing — 116. fundur, 12. júní 2020.
lengd þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp gera ráð fyrir. Forseti spyr: Er óskað atkvæðagreiðslu um tillögu forseta?
Það er óskað atkvæðagreiðslu um tillögu forseta og þá fer hún fram samhliða öðrum atkvæðagreiðslum síðar í dag.