um fundarstjórn.
Herra forseti. Maður fylltist augnabliksbjartsýni þegar maður las hluta af stjórnarsáttmálanum er varðaði ný vinnubrögð á Alþingi. Maður trúði því virkilega að þegar flokkur, sem hefur öskrað sig hásan yfir óréttlætinu sem hann hefur verið beittur á undanförnum árum, settist loksins í forsætisráðherrastólinn, stýrði þessari ríkisstjórn myndi hann breyta hlutunum. Á dauða mínum átti ég von en ekki því að flokkurinn ætlaði að nýta sér þetta tækifæri til þess að ganga enn lengra. En kannski kemur það ekki á óvart vegna þess að auðvitað kemur þetta fólk, sem er búið að starfa í 20 ár í stjórnmálum, úr stjórnmálaskóla gömlu karlanna og starfar alveg nákvæmlega eins.
Að lokum vil ég segja þetta: Félagsmálaráðherra hefur haft 14 mánuði til þess að koma hingað inn á þingið með hlutdeildarlánin. Það minnsta sem herra forseti getur gert er að færa málið 15 málum framar á dagskrá. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)