um fundarstjórn.
Herra forseti. Eins og þingmenn þekkja er alvanalegt, þegar kemur að þinglokum, að mikið sé að gera og menn þurfi að halda aukafund í nefndum. Þess vegna lagði ég til á fundi velferðarnefndar í upphafi fundarins í gær að nefndin kæmi sér saman um að halda aukafund og lagði til þrjár tímasetningar. Enginn minnihlutamanna treysti sér til að bregðast við þeim tímasetningum á jákvæðan hátt. (Gripið fram í.)(Gripið fram í: Minni hlutinn stakk upp á sunnudagskvöldi.)(Gripið fram í: Meiri hlutinn gat ekki orðið við því.)(Forseti hringir.)
(Forseti (SJS): Forseti biður um að það tali bara einn í einu í þingsalnum …)
Fyrst hér er kallað fram í að stungið hafi verið upp á fundartíma á sunnudagskvöldið, þá gerði formaður nefndarinnar það, það er hárrétt. Það var ekki mín tillaga. Ég lagði hins vegar til að fyrst ekki næðist samkomulag myndum við freista þess að fá fundartíma í dag og eftir því sem mér skilst hefur forseti orðið við því.
Varðandi málið sjálft þá hefur það verið til meðferðar í nefndinni síðan í nóvember sl. (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Það hefur margoft verið tekið til umfjöllunar í nefndinni (Gripið fram í.) og það er fráleitt að halda því fram að hér séu einhver (Forseti hringir.) ófagleg, óvönduð vinnubrögð á ferðinni. (Forseti hringir.) Ég vísa því algjörlega til föðurhúsanna. (Gripið fram í.)
(Forseti (SJS): Forseti biður um ró í salnum og finnst mikilvægt að þessi fundur fari skipulega fram, fyrir nú utan það að æskilegt væri að menn ræddu og útkljáðu mál af þessu tagi í nefndunum.)
(Gripið fram í: Já!)(Gripið fram í: Heyr, heyr.)