150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

um fundarstjórn.

[12:47]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Mér þætti vænt um ef fólk gæti beitt sér fyrir því meðal liðsmanna sinna í stjórnarmeirihlutanum að þau orð sem forseti lét falla hér, að hægt væri að útkljá mál og komast að málefnalegri niðurstöðu á nefndarfundum, yrðu að veruleika.

Lyfjalög eru hér til umræðu og afgreiðsla þeirra. Síðasti fundur um þau var 9. mars, þ.e. síðustu gestakomur. Ekki tók við málefnaleg umræða en síðustu daga bárust fréttir af því að framsögumaður málsins væri að vinna nefndarálit. Hann var ekki tilbúinn til að deila þeim hugleiðingum, hélt spilunum þétt að sér og sendi út álit í gær með því fororði að reyna ætti að taka það út í dag. Ef ég lít á álitið kemur í ljós að það vantar kaflann um eitt það sem mest var umdeilt af mörgum umdeildum atriðum. „Kemur síðar“ stóð þar og það kom síðar, kl. 11:28 í morgun með þeim skilaboðum að forseti hefði gefið leyfi fyrir því að þetta yrði tekið út á úttektarfundi í dag í fundarhléi, enda þyrfti bara stuttan fund af því að ekki ætti að ræða nefndarálitið. Það var búið að skrifa það. Þetta var meitlað í stein, (Forseti hringir.) þetta er faglega umræðan, það þurfti bara stuttan úttektarfund. (Forseti hringir.) Þetta er annaðhvort dæmi um óbærilega vanhæfni eða það sem ég held að sé frekar; ótti við málefnalega umræðu. (Forseti hringir.) (Gripið fram í: Heyr, heyr.)