um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Það er góð hefð og raunar alvanalegt, eins og hv. þingmenn hafa talað hér fjálglega um, að heimila gesti og heimila gagnaöflun frá þeim nefndarmönnum sem taka þátt í störfum nefnda, að nefndin komi sér saman um hvenær athugun mála er lokið. Nú eru viðkvæmar viðræður í gangi milli hv. þingflokksformanna um lyktir mála, þinglok og þinghaldið fram undan. Í stað þess að vinna af heilindum í þeim viðræðum, í stað þess að koma til móts við óskir minni hlutans af sanngirni og heiðarleika eru mál rifin út úr nefndum, ófullbúin og í ágreiningi sem er alger óþarfi að efna til. Hv. þm. Birgir Ármannsson segir réttilega að minni hlutinn ráði ekki. Það þýðir ekki að meiri hlutanum leyfist að ganga illa frá málum sem gera á að lögum fyrir alla landsmenn. Það er vanvirðingin sem við erum að benda á hér. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)