um fundarstjórn.
Herra forseti. Þessi umræða sýnir að við erum komin í hefðbundnar ógöngur. Þetta er farið að minna á bíómyndina Groundhog Day og ég hvet hæstv. forseta til að grípa inn í. Hann er ekki bara fundarstjóri á einhverjum málfundi, hann er forseti alls þingsins. Það virðist eitthvað meira en lítið vera að í velferðarnefnd og atvinnuveganefnd hjá stjórnarþingmönnum sem þar sitja. Ég sit í fjárlaganefnd og þar tökumst við á við ansi stór mál, hvort sem það eru fjárlög, fjáraukalög eða annað slíkt. Málin þar eru almennt séð ekki rifin út úr nefnd þó að okkur greini á um pólitík. Það er því virkilega eitthvað að hjá stjórnarþingmönnum sem sitja í þessum tveimur þingnefndum.
Mig langar líka að minna á að það er ekki lýðræðislegt að meiri hlutinn valti yfir minni hlutann. Það er ekki lýðræðislegt. 47% þjóðarinnar kusu þá flokka sem sitja í stjórnarandstöðu. Það þarf að taka tillit til stjórnarandstöðunnar. Þjóðin hefur enga þolinmæði fyrir svona vinnubrögðum. Við erum að fara inn í dýpstu kreppu í 100 ár. Hvernig stendur á því að (Forseti hringir.) þessir þrír stjórnarflokkar fara í nákvæmlega sömu gamaldags vinnubrögðin, (Forseti hringir.) á þessum tímum af öllum, herra forseti? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)