um fundarstjórn.
Herra forseti. Það gerist mjög fyrirsjáanlega tvisvar á ári, og er alltaf ákveðið sport, að reyna að giska á hvaða dag það ber upp á, að það kemur í ljós með nákvæmlega hvaða hætti meiri hlutinn ætlar að fara að beita meirihlutavaldi sínu á mjög ósanngjarnan og ósamvinnuþýðan hátt til að spilla friðinum. Nú erum við nýbúin að vinna saman á ótrúlega öflugan hátt í gegnum heimsfaraldur kórónuveiru og friðurinn er búinn að vera merkilega góður en núna er friðurinn úti vegna þess að meiri hlutinn vill fá að troða nokkrum málum í viðbót í gegn fyrir sumarið. Er það virkilega góð leið til þess að ljúka þingi? Ég verð að spyrja: Er ekki hægt að fara að vinna hlutina betur hér á Alþingi? Hvenær ætlum við að fara að hegða okkur í samræmi við það vald og mikilvægi sem þessi stofnun hefur? (Forseti hringir.) Ég skil ekki hvers vegna þetta þarf alltaf að vera svona tvisvar á ári, alveg upp á dag.