um fundarstjórn.
Forseti. Ég var svo djúpt sokkin í þessa umræðu að ég er eiginlega búin að gleyma því hvað ég ætlaði að segja, annað en bara það að það sem fer mest fyrir brjóstið á mér, það sem mér finnst erfiðast við þetta, er að það er svo auðvelt fyrir okkur að vinna saman. Þetta er ekkert svo flókið. Við ættum að geta átt eðlilegt samstarf og eðlilegt samtal í nefndum. Ég hef alveg orðið vitni að því, það er hægt. Við getum lokið þessum málum á málefnalegan hátt. Við þingflokksformenn höfum verið að semja um hvernig við ætlum að ljúka þessu starfi nú fyrir þinghlé. Á sama tíma og það samtal á sér stað þarf meiri hlutinn í nefndum að rífa mál út á ómálefnalegan hátt í staðinn fyrir að tala við okkur og semja um hlutina. Það er ofbeldið sem felst í því sem ég á erfiðast með að sætta mig við og sætti mig hreinlega ekki við, að verkfærin sem eru notuð hér inni séu ofbeldisverkfæri. Það er til skammar. (Gripið fram í: Hvaða rugl er þetta?)(Gripið fram í: Heyr, heyr.)