150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

um fundarstjórn.

[12:55]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M):

Herra forseti. Ég vil taka undir með þeim hv. þingmönnum sem lýst hafa áhyggjum sínum af vinnubrögðum í sumum nefndum þingsins. Sömuleiðis vil ég taka undir tillögu hv. þm. Halldóru Mogensen um að færa það mál sem er hér aftast á dagskránni helst sem fremst.

Þannig stendur á í hv. atvinnuveganefnd að þar er til umfjöllunar mjög viðkvæmt mál, sem er lög um lax- og silungsveiði. Það eru svo flóknar og erfiðar spurningar í því máli að þar er yfir hraungrýti og hölkn að fara. Það kallar á vönduð vinnubrögð. Nú stendur þannig á að komnar eru fram viðamiklar breytingartillögur frá stjórnarmeirihlutanum og þær þurfa að fá fullnægjandi þinglega meðferð. Svo virðist sem ekki sé boðið upp á það. Ég vara við svona vinnubrögðum og ég beini því til þeirra sem fara með stjórn landsins og þingsins að látið verði af þessum vinnubrögðum og (Forseti hringir.) svona stór og viðkvæm mál fái fullnægjandi afgreiðslu.