150. löggjafarþing — 116. fundur,  12. júní 2020.

um fundarstjórn.

[12:56]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Þetta er mesti stormur í vatnsglasi sem maður hefur upplifað í langa tíð. En það er gott ef fólk vill tala sig upp í að vera alveg blóðöskuillt hérna út í allt og alla, (Gripið fram í: Nei.) það fylgir oft þessum tíma þegar þingi fer að ljúka. Þetta er alvanalegt. En að það sé stórmál að fara eftir þingsköpum og taka mál út úr nefndum, að það sé alltaf kallað að mál séu rifin út úr nefnd ef það er pólitískur ágreiningur um efnisinnihald málsins (HallM: Það er engin umræða) er mjög einkennilegt. Eðlilega er (Gripið fram í.) pólitískur ágreiningur.

(Forseti (SJS): Gefa hljóð.)

Ef það er óeðlilegt að biðja um aukafund (Gripið fram í: … þú veist ekki …) á þessum tíma árs, þegar menn eru að ljúka þingstörfum og fyrir jól og áramót, ef það er óeðlilegt að fara eftir þingsköpum og vinna mál og taka þau fyrir (Gripið fram í.) og óska eftir fleiri fundum, ef það er orðið óeðlilegt og menn treysta sér ekki til þess er starfið á þingi orðið eitthvað skrýtið, ef við treystum okkur ekki til að vinna vinnuna okkar. Þau mál sem um er að ræða, (Forseti hringir.) eins og í velferðarnefnd, voru búin að fá gífurlega mikla umfjöllun í nefndinni (Forseti hringir.) og þau voru tilbúin (Gripið fram í.) til úttektar. (Forseti hringir.) Það vita menn ef menn segja satt. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)(Gripið fram í: … kjaftæði.)