um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Eins og hér hefur verið rætt erum við stödd á þessum tíma misserisins. Þetta er ekki alltaf upp á dag en nálægt því. Nú er 12. júní og árið 2017 varð svona gusa 22. maí. Mig langar að drepa þar niður í eina ræðu, með leyfi forseta:
„Ein af fyrstu og ríkustu skyldum þingnefndar er að fullrannsaka mál, reyna síðan að ná samstöðu um þau ef mögulegt er en afgreiða þau þá út með mismunandi afstöðu og nefndarálitum ef slík samstaða er ekki í boði, en þá helst ekki fyrr en nefndarmenn eru út af fyrir sig sammála um að málið sé fullunnið og fullrannsakað.“
Þetta finnst mér vera góður leiðarvísir og þetta er eitthvað sem ég tel að virðulegur forseti, sem ábyrgðarmaður þess að nefndastörf gangi vel fyrir sig, geti tekið til sín, enda er honum málið skylt því að þarna stóð í pontu þingmaðurinn Steingrímur J. Sigfússon árið 2017 og sagði þessi góðu orð. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)