um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég verð að segja að það er alltaf gott ef samstarfið í nefndum er af hinu góða og betra ef hægt er að afgreiða mál í sátt og samlyndi. Það er hins vegar gjarnan þannig að svo er ekki af því að það er pólitískur ágreiningur um mál. Það að niðurstaða sé fengin í nefnd þýðir ekki endilega að allir séu sáttir við hana. Það er mjög mikilvægt að hafa í huga. Það að mál séu fullrædd er líka þess eðlis að það eru ekki allir sammála um það hvort mál séu endilega fullrædd á einhverjum tilteknum tímapunkti. Það verðum við líka að hafa í huga á hverjum tíma. Mér sýnist svo vera um þau mál sem hér hafa verið nefnd. Mér þykir líka vert að nefna að mér finnst ósmekklegt, ég verð að segja það, að víkja sérstaklega að tveimur nefndarmönnum í bæði hv. atvinnuveganefnd og hv. velferðarnefnd og í rauninni ásaka þær sérstaklega um ofbeldi. Ofbeldi er ljótt og stórt orð sem nær yfir hluti sem mér finnst ekki vera þeir sömu og að ákveða að leggja til að mál (Forseti hringir.) verði tekin út úr nefndum. Það er ekki ofbeldi. (Forseti hringir.) Það er bara ágreiningur um afgreiðslu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)(Gripið fram í.)